152. löggjafarþing — 9. fundur,  13. des. 2021.

fjarskipti o.fl.

169. mál
[20:53]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tek undir það sem fram kom og deili skoðunum hv. þingmanns. Varðandi eftirlitið með þjóðaröryggi þá bendi ég á í tengslum við þessa sölu á grunninnviðum að á sínum tíma þegar dreifikerfið var selt var sérstaklega tekið fram af hálfu þáverandi ríkisstjórnar að það ætti að vera í íslenskri eigu. Það var m.a. til að tryggja ákveðna innviði, það er bara öryggisatriði. Fyrst verið er að fara út fyrir það svið þá hefði maður einmitt haldið að eitthvað væri tilbúið, einhver væri búinn að skoða það. Fyrir rúmu ári síðan voru fréttir um þessa hugsanlegu sölu. Fínt. Þá á eitthvað að fara af stað í ráðuneytinu, í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, núna innviðaráðuneyti. Það hefur ekki gerst. Ég tel að það hefði þurft að fara gaumgæfilega ofan í það hvað þetta þýðir. Hvað þýða virkir innviðir? Hvað þýðir það að hafa þessi IP-net, endastöðvar og fleira inni í þessum pakka? Hvað þýðir það fyrir þjóðaröryggi? Hvar var sú kortlagning? Ég spurði að því á fundi formanna og ekki var sagt neitt annað en: Við erum að skoða. Við erum að reyna að gera samning og við ætlum að reyna að tryggja okkur eftir á. Það er fínt en þetta er bara allt eftir á. Við eigum að vinna forvinnu ef við ætlum að vera virk í okkar eigin hagsmunagæslu þegar kemur að þjóðaröryggi.

Ég vil ítreka það að Viðreisn mun, þótt tíminn sé skammur, gera allt til þess að tryggja þjóðaröryggi, til að tryggja þessa vinkla sem við erum að draga fram hér og sinna vinnu okkar í umhverfis- og samgöngunefnd með þeim hætti og hér í þinginu. En ég verð að ítreka að mér finnst það vera metnaðarleysi af hálfu forystufólks í ríkisstjórninni hvernig að þessu hefur verið staðið og svarleysið er hrópandi.