152. löggjafarþing — 10. fundur,  14. des. 2021.

störf þingsins.

[13:05]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Nokkur orð um mikilvægi þess að styrkja byggðalínuna, flutningskerfi raforku, sem fyrst. Við höfum rætt þessi mál töluvert síðustu daga og ég vildi koma nokkrum orðum að því hér í störfum þingsins. Þessa dagana og í vetur erum við að glíma við raforkuskort, væntanlega í fyrsta skipti í 15 til 20 ár á Íslandi. Þetta á við ákveðin landsvæði og atvinnugreinar. Það má alveg leiða að því líkum að stór hluti af þeim vandamálum sem við er að eiga núna stafi raunverulega af veikbyggðu flutningskerfi raforku. Kerfið er 40 til 50 ára gamalt og var byggt á áttunda áratugnum. Þegar það var tekið í notkun flutti það um 20–25% af aflgetu virkjana í landinu. Í dag er það hlutfall orðið 3–4%. Því vil ég meina að stór hluti af því vandamáli sem við er að eiga í dag sé léleg flutningsgeta. Við gætum miðlað orku um landið með miklu betri og öflugri hætti ef við hefðum flutningskerfi til að bera orkuna.

Markmið okkar um orkuskipti og ýmis önnur loftslagsverkefni munu ekki nást á næstu árum og áratugum nema með því að flutningskerfi raforku verði styrkt. Það er kannski ekki öllum ljóst að virkjanir á Norður- og Austurlandi framleiða svipaða orku og framleidd er á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Það er því gríðarlega stórt og mikilvægt verkefni að efla raforkukerfið, styrkja flutningskerfi raforku, m.a. að nýta betur kerfið í heildina og jafna úr vatnsbúskapnum þegar illa árar á einstökum svæðum eins og við upplifum nú á Þjórsársvæðinu. Til að bæta úr þessu þurfum við að styrkja línuna, hvort sem það er byggðalínuhringurinn eða þá að skoða möguleika um strengjalögn yfir Sprengisand til að styrkja það enn frekar.

Tækifæri okkar Íslendinga í framleiðslu á grænni endurnýjanlegri orku eru stór og mikilvæg fyrir samkeppnishæfni Íslands til langrar framtíðar, fyrir atvinnulífið og velferð íbúanna.