152. löggjafarþing — 10. fundur,  14. des. 2021.

störf þingsins.

[13:08]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg):

Herra forseti. Tryggt aðgengi að góðri heilbrigðisþjónustu skiptir miklu fyrir búsetuöryggi. Víða um land hefur margvíslegri þjónustu verið hagrætt í burtu eins og veigamikilli bráðaþjónustu. Af þeim sökum er öruggt aðgengi að sjúkraflugi vegna alvarlegra veikinda eða slysa lífsnauðsyn. Því miður er það svo að aðstöðu og búnaði á flugvöllum til sjúkraflugs hefur verið illa við haldið á mikilvægum stöðum. Það er full ástæða til að ræða hér enn og aftur aðstöðu til sjúkraflugs á Blönduósflugvelli. Við þekkjum að landleiðin inn og út úr héraðinu hefur lokast jafnvel dögum saman og þar fara 700.000 bílar um á ári. Einnig hafa orðið alvarleg hópslys. Jákvæðar fréttir berast nú frá Blönduósi um margvíslega uppbyggingu, ekki síst í atvinnulífi eins og hátæknimatvælavinnslu í tengslum við það blómlega fyrirtæki Vilko. Fjölbreytt og góð búsetuskilyrði skipta miklu fyrir frekari eflingu byggðar og þar er búsetuöryggi og tryggt aðgengi að góðri heilbrigðisþjónustu grundvallaratriði. Þar gegnir sjúkraflug um Blönduósflugvöll lykilhlutverki fyrir íbúa í Húnavatnssýslum og þann fjölda fólks sem ferðast þar um.

Það er ekki langt síðan aðflugsljós voru löguð og komið upp GPS-kerfi til að auðvelda flug um völlinn og það er vel. En til að klára verkið, svo Blönduósflugvöllur geti gegnt öryggishlutverki sínu fyrir svæðið, þarf að ljúka lagningu bundins slitlags á Blönduósflugvelli. Slík framkvæmd gæti kostað nálægt 40 millj. kr. ef um yfirlögn er að ræða líkt og á Norðfjarðarflugvelli, sem gefist hefur vel, til að tryggja þar meira öryggi í sjúkraflugi. Það er nær 70 millj. kr. ef um malbikun er að ræða. Það eru ekki háar fjárhæðir miðað við hve mikið er í húfi. Ég vil því skora á samgönguyfirvöld að gegna því hlutverki sínu að sjá til þess að þessu mikilvæga verki verði lokið sem fyrst, enda standa til þess ríkir almannahagsmunir.