störf þingsins.
Virðulegur forseti. Skráð atvinnuleysi á Íslandi í nóvember var 4,9% samkvæmt mælingum Vinnumálastofnunar. Þegar maður horfir á þá tölu veltir maður fyrir sér: Er þetta ekki bara fjári gott miðað við þá stöðu sem við höfum verið í? Atvinnuleysi fór í 12% fyrir ári og þetta eru greinilega veruleg batamerki, landið er að rísa. En þegar maður horfir á þessar tölur og veltir því fyrir sér hvað stendur á bak við 4,9%, hvaða einstaklingar standa á bak við þessa tölu, þá sjáum við að án atvinnu í dag eru rúmlega 10.000 einstaklingar, 10.000 manns sem hafa ekki vinnu og eiga erfitt með að sjá sér og sínum farborða.
Það sem vekur líka athygli í þessu er að af þessum 10.000 er tæplega helmingurinn íbúar af erlendu bergi brotnir sem eiga erfitt um vik á Íslandi, kannski með ekkert tengslanet. Á sama tíma sjáum við líka að það er bara verið að auglýsa 400 störf þegar 10.000 manns eru án atvinnu. Næstum helmingurinn af þessum hópi hefur líka verið án atvinnu í 12 mánuði eða lengur og sumir landshlutar eru ekki með 4,9% heldur upp undir 10% atvinnuleysi, þar á meðal á Suðurnesjum. Við erum að horfa á hópa sem eru í verulegum vandræðum og einhverra hluta vegna finnst mér eins og ekki sé horft til þess í fjárlagafrumvarpinu. Málaflokkur 30, sem fjallar um vinnumarkaðinn, er skorinn niður um tæpa 50 milljarða.