störf þingsins.
Herra forseti. Mig langar til að gera hér að umræðuefni stöðu mála á veitingamarkaði. Það er sennilega enginn geiri, alla vega fáir, sem hefur farið verr út úr Covid-aðgerðum stjórnvalda en veitingageirinn. Undir regnhlíf Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði eru rétt um 1.000 fyrirtæki með um 10.000 starfsmenn þannig að hér er enginn smáhópur undir. Frá því að takmarkanir tóku gildi hefur fjöldi viðskiptavina á veitingastöðum og börum landsins hríðfallið og starfsemi fyrirtækja á veitingamarkaði hefur verið takmörkuð einna mest af öllum atvinnugreinum á Íslandi. Þegar takmarkanir eru settar á með stuttum fyrirvara og engin úrræði í boði sitja rekstraraðilar uppi með allan kostnað.
Það er í raun óboðlegt að stjórnvöld takmarki starfsemi fyrirtækja svo án þess að komið sé til móts við greinina með stuðningsaðgerðum. Það er einmitt það inntak sem kom fram í ákalli þessara samtaka, Samtakanna SVEIT, sem eru Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, sem sent var þingheimi nú um mánaðamótin. Nú nálgumst við miðjan desembermánuð. Tíminn til áramóta, þegar fjárlög liggja fyrir, er rétt hálfnaður frá því ákallið var sent og enn hefur ekkert komið fram sem bætir eða færir til betri vegar stöðu starfsmanna þessara fyrirtækja og fyrirtækjanna sjálfra.
Þegar stjórnvöld ganga fram með þeim íþyngjandi aðgerðum sem reglulega hafa verið keyrðar yfir þennan markað síðustu tvö árin þá kemur til af því verulegur kostnaður og starfsskilyrði og öryggi starfsmanna þessara fyrirtækja eru í algjöru uppnámi. Ég held að skynsamlegast væri að við fikrum okkur í þá átt að hætta þeim aðgerðum sem við höfum verið undirorpin nú í hartnær tvö ár. Í öllu falli, á meðan stjórnvöld (Forseti hringir.) eru ekki tilbúin til að hætta þessum aðgerðum, verður að koma til móts við þá aðila sem standa í þessum rekstri.