152. löggjafarþing — 10. fundur,  14. des. 2021.

störf þingsins.

[13:32]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Herra forseti. Börn eru eins misjöfn og þau eru mörg. Einhver þurfa stuðning frá fagaðilum í gegnum lífið á einhverjum tímapunkti í lífinu. Önnur þurfa það ekki. Stuðningur frá fagaðilum, hvort sem það eru talmeinafræðingar, sálfræðingar, iðjuþjálfar, hegðunarráðgjafar eða aðrir er mjög mikilvægur og sérstaklega mikilvægt að stuðningurinn komi strax til að úrlausn vandans fáist. Nú er staðan sú að á heilsugæslu, sem er flokkuð sem fyrsta stigs þjónusta, á stofu þar sem fagaðilar vinna, sem er annars stigs þjónusta, og á barna- og unglingageðdeild, sem er flokkuð sem þriðja stigs þjónusta, eru biðlistar. Þar eru biðlistar sem geta verið allt frá því að vera margir mánuðir upp í ár eða tvö ár. Staðan er þannig að sálfræðitímar eru einfaldlega munaður. Tímarnir eru orðnir vinsælar afmælisgjafir fyrir börn og mögulega jólagjafir þegar líður að jólum. Þetta ástand er ekki boðlegt börnum landsins eða fjölskyldum landsins. Vanræksla af hálfu ríkisins hefur langvarandi áhrif á börn. Það skiptir máli hvort barn fái aðstoð með málþroska þegar það er þriggja ára eða fjögurra ára. Það skiptir máli hvort þú fáir aðstoð við félagskvíða þegar þú ert 11 ára eða 12 ára. Að grípa inn í vanda hjá barni sem fyrst skiptir öllu máli. Það að styðja úrræði og stofnanir sem sinna þessum einstaklingum er ekki einungis spurning upp á líf og dauða heldur er einnig fjárhagslegur ávinningur fyrir ríkið. Ef við fjárfestum í börnunum okkar þá munum við uppskera heilbrigðara þjóðfélag. Ef við setjum ekki þjónustu við börn og ungmenni í forgang þá munum við súpa seyðið af því seinna. Þessi málaflokkur hefur verið vanræktur allt of lengi og meðan ég sit hér mun ég berjast fyrir honum og gera hvað ég get í þessum málaflokki.