dýralyf.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir greinargóð svör og ekki bara eins langt og þau ná. Ég held að nákvæmlega þetta sé staðan og ég vil taka undir ákveðnar áhyggjur ráðherrans þegar kemur að sýklalyfjaónæminu. Það er lykilatriði fyrir okkur að vera í mikilli samvinnu, m.a. við Evrópusambandið, við Evrópulöndin, til að vinna að öflugri gagnagrunnum og líka þeirri þekkingu sem við þurfum að ná okkur í og geta miðlað af. En ég vara við því að við verðum með einhverjar séríslenskar lausnir sem eru kannski meira til heimabrúks heldur en að gera raunverulega gagn.
En fyrst ég er komin hingað upp langar mig sérstaklega að nýta tækifærið út af allt öðru og óska hæstv. heilbrigðisráðherra til hamingju með ákvörðunina um að afnema þetta dellumakarí varðandi starfsskilyrði sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga, að þeir verði að hafa a.m.k. tveggja ára starfsreynslu til að Sjúkratryggingar Íslands taki þátt í kostnaði. Mér finnst frábært hvernig ráðherrann er að byrja. Það þarf að vinda ofan af þessum heimatilbúnu biðlistum. Ég vil meina að langstærstur hluti þeirra biðlista sem við stöndum frammi fyrir þegar kemur að börnum, þegar kemur að aðgengi að sjúkraþjálfun, sálfræðiþjónustu, að ég tali nú ekki um sjálfstætt starfandi læknum eða öðrum heilbrigðisaðilum — þetta kerfi sem slíkt þvælist þar svolítið fyrir. Mér finnst skrefið sem ráðherrann tók varðandi talmeinafræðinga til fyrirmyndar og ég vil einfaldlega þakka fyrir það. Ég veit að það skiptir fjölskyldur miklu máli, ekki bara hér á suðvesturhorninu, Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu, heldur en um land allt. Það er því afar jákvætt skref sem ráðherrann tekur.