152. löggjafarþing — 10. fundur,  14. des. 2021.

skattar og gjöld.

5. mál
[14:01]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (bifreiðagjald, olíu- og kílómetragjald, vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.).

Tilefni frumvarpsins er breyting á aðkomu faggiltra skoðunarstöðva og Samgöngustofu að innheimtu gjalda þar sem samningar fjármála- og efnahagsráðuneytisins við skoðunarstöðvar og Samgöngustofu um greiðslu þóknana vegna innheimtu gjalda voru felldir úr gildi í upphafi árs 2021. Samningarnir höfðu verið í gildi allt frá árinu 1998 og voru taldir barn síns tíma og ekki í samræmi við sjónarmið að baki lögum um opinber fjármál, lög um innheimtu opinberra gjalda og markmið ríkisstjórnarinnar síðustu ár um skilvirkni innheimtu opinberra skatta og gjalda. Ráðuneytið hefur átt í samráði við Samtök verslunar og þjónustu fyrir hönd skoðunarstöðva sem og Samgöngustofu, Fjársýslu ríkisins og Skattinn enda hafa ýmis álitaefni vaknað í kringum framkvæmd innheimtu skatta á ökutæki. Með þessu frumvarpi er reynt að mæta sjónarmiðum skoðunarstöðva og Samgöngustofu um að minnka aðkomu þeirra að innheimtu opinberra skatta og gjalda sem mest má án þess að innheimtuárangri verði stefnt í voða.

Í frumvarpinu eru lagðar til ýmsar smávægilegar breytingar sem taldar eru til bóta á lögum um bifreiðagjald, lögum um olíugjald og kílómetragjald og lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. Breytingarnar aflétta skyldu skoðunarstöðva til að kveðja til lögreglu ef eigandi eða umráðamaður hefur látið hjá líða að greiða bifreiðagjald, vörugjald, kílómetragjald eða sérstakt kílómetragjald af bifreiðinni.

Hvað varðar lög um bifreiðagjald er m.a. lagt til að í kjölfar eigendaskipta sjái álagningaraðili, ríkisskattstjóri, um endurgreiðslu til seljanda og nýja álagningu bifreiðagjalda á kaupanda með eindaga 15 dögum síðar. Þá er lagt til að við nýskráningu og afhendingu skráningarmerkis verði ekki skylt að greiða bifreiðagjald strax heldur verði það lagt á í kjölfarið með eindaga 15 dögum síðar.

Þá eru lagðar til breytingar á lögum um olíugjald og kílómetragjald. Þannig er lagt til að aðkoma faggiltra skoðunarstöðva að álestri af kílómetramælum gjaldskyldra ökutækja minnki með því að ríkisskattstjóri geti ákveðið að heimilt verði að færa inn álestur með rafrænum hætti. Slíkt er í samræmi við þróun stafrænnar þjónustu af hálfu hins opinbera og er til hagsbóta fyrir eigendur gjaldskyldra ökutækja. Aðkoma skoðunarstöðva verði þó áfram til staðar. Það birtist í eftirlitshlutverki við aðalskoðun og þannig er tryggt að reglulega berist álestur til Skattsins og að skatteftirliti verði viðhaldið. Hins vegar er ljóst að skoðunarstöðvar muni enn um sinn sinna álestri kílómetramæla lögum samkvæmt jafnvel þótt ríkisskattstjóri ákveði að heimilt verði að færa inn álestur rafrænt.

Mat á áhrifum tillagna frumvarpsins er að gert er ráð fyrir því að fjárhagsáhrifin séu óveruleg. Gera má ráð fyrir því að í einhverjum tilvikum seinki innheimtu bifreiðagjalda, einkum þegar um er að ræða nýskráningu bifreiða og úttekt skráningarmerkja, enda verður bifreiðagjaldið ekki innheimt á staðnum heldur lagt á eftir á. Ekki er gert ráð fyrir teljandi áhrifum á bifreiðaeigendur vegna breytinga á lögum um bifreiðagjald. Ef heimilt verður að skrá álestur af kílómetramælum rafrænt þá tel ég að þjónustan batni. Það skiptir máli fyrir eigendur gjaldskyldra ökutækja auk þess sem áhættan af því verklagi er minnkuð með því að skoðunarstöðvar skrái ekna kílómetra ökutækis við aðalskoðun og sendi upplýsingarnar til ríkisskattstjóra.

Kannski erum við þarna komin með einhvers konar fyrirmynd sem við getum haldið áfram að byggja á vegna þess að við stöndum frammi fyrir talsverðum breytingum á innheimtu gjalda vegna ökutækja í landinu. Hér erum við að horfa til afmarkaðs þáttar. Það eru þeir aðilar sem eru með kílómetramælana sem hér eiga undir. Það er ekki ólíklegt að við færum okkur smám saman yfir í það að fyrir almenna umferð þurfi að miða við það hver mælistaðan er, þ.e. hinn almenna mæli ökutækjanna en ekki hinn sérstaka kílómetramæli sem á við í þessum tilvikum.

Áhrif á stjórnsýslu ríkisins og stofnanir eru talin verða hverfandi en þó er gert ráð fyrir því að ábyrgð Samgöngustofu og starfsleyfisskyldra skoðunarstöðva verði minni þar sem bifreiðagjald verður ekki innheimt lengur við nýskráningar og úttekt skráningarmerkja. Þetta hefur sömuleiðis einhver áhrif á Skattinn þar sem ný álagning og eftir atvikum endurgreiðsla þarf að fara fram við eigendaskipti, nýskráningar og úttekt skráningarmerkja. Þetta eru ekki stórvægileg áhrif, þau eru í eðlilegu samhengi við efni frumvarpsins. Aðrar breytingartillögur eru taldar hafa mjög óveruleg eða engin áhrif á afkomu ríkissjóðs.

Ég legg að þessu sögðu, virðulegi forseti, til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.