152. löggjafarþing — 10. fundur,  14. des. 2021.

tekjuskattur.

137. mál
[14:08]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á tekjuskattslögum. Efni frumvarpsins varðar samsköttun félaga og er frumvarpið lagt fram til að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA um að íslenskar reglur um samsköttun og nýtingu eftirstöðva rekstrartapa félaga kunni að brjóta í bága við 31. og 40. gr. EES-samningsins um staðfesturétt og frjálst flæði fjármagns.

Ég legg þetta frumvarp hér fram í fjórða sinn en þetta er í fyrsta sinn þar sem aðeins ber nauðsyn til varðandi eitt efnisatriði endurflutts frumvarps að breytingar þessar nái fram að ganga. Með þessu er ég að draga það fram að í eldra frumvarpi var fleiri efnisatriðum til að dreifa sem ekki vörðuðu athugasemdir frá Eftirlitsstofnun EFTA.

Í frumvarpinu felast tillögur að breytingum á 55. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003. Lagt er til að dótturfélögum félaga í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins (EES) eða í Færeyjum, sem staðsett eru hér á landi, verði heimil samsköttun með innlendum samstæðufélögum. Jafnframt er lagt til að hérlendu móðurfélagi verði heimilt að óska eftir takmarkaðri samsköttun með dótturfélögum sínum skráðum innan eins aðildarríkis Evrópska efnahagssvæðisins, aðildarríkis stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum, enda séu öll almenn skilyrði samsköttunar uppfyllt að öðru leyti.

Gerðar voru breytingar á ákvæði 55. gr. laga nr. 90/2003 með lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna aðgerða gegn skattundanskotum og skattsvikum, nr. 77/2018, á vorþingi 2018 sem fólu í sér að föstum starfsstöðvum félaga í aðildarríkjum EES og í Færeyjum, sem staðsettar eru á Íslandi, var heimiluð samsköttun með innlendum samstæðufélögum. Að mati Eftirlitsstofnunar EFTA gengu þessar breytingar ekki nægjanlega langt þar sem athugasemdir ESA höfðu einnig snúið að heimildum til samsköttunar í tilviki dótturfélaga erlendra félaga.

Jafnframt er lagt til það nýmæli að innlendu móðurfélagi verði heimilt að óska eftir takmarkaðri samsköttun með dótturfélögum sínum skráðum í einu aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins eða í Færeyjum, enda séu öll skilyrði samsköttunar uppfyllt að öðru leyti.

Tillaga þessi á rót að rekja til dóms EFTA-dómstólsins í máli E-15/16, sem varðaði Yara International ASA, en að höfðu samráði við Eftirlitsstofnun EFTA var ákveðið að leggja þessa breytingu til þegar sýnt væri fram á að öll skilyrði fyrir takmarkaðri samsköttun væru uppfyllt. Um er að ræða undantekningu sem ber að túlka þröngt og er ætlunin ekki að veita betri rétt við þessar aðstæður en sem gildir um samsköttun innlendra aðila.  

Vegna athugasemda eftirlitsstofnunarinnar er loks lagt til að fella brott skilyrði sem sett var með lögum nr. 77/2018, að danskri og norskri fyrirmynd, að tap fastrar starfsstöðvar sé því aðeins frádráttarbært hjá íslensku félagi að ekki sé unnt að jafna það hjá erlendu félagi föstu starfsstöðvarinnar. Samkvæmt forúrskurði Evrópudómstólsins í máli C-18/11, sem varðaði Philips Electronics Ltd., er slík takmörkun á rétti til að nýta tap hindrun á staðfesturétti lögaðila.

Talið er að ákvæði frumvarpsins muni hafa einhvern aukinn kostnað í för með sér, a.m.k. til skemmri tíma litið, þar sem opnað er fyrir samsköttun með innlendum hluta samstæðna sem ná út fyrir landsteinana og nýtingu endanlegs taps hjá erlendu samstæðufélagi. Engin leið er þó til að meta þau áhrif í krónum á þessu stigi en þau munu koma fram sem lækkun á tekjuskatti lögaðila vegna samnýtingar og nýtingar á rekstrartapi innan samstæðunnar strax, sem ella hefði komið fram á lengri tíma.

Virðulegi forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.