staðfesting ríkisreiknings.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um staðfestingu ríkisreiknings 2020 í samræmi við ákvæði laga um opinber fjármál. Ríkisreikningur er gerður á grundvelli svonefnds IPSAS-staðals. Áritun ríkisendurskoðanda er án fyrirvara en með ábendingu um innleiðingu á breyttum reikningsskilum þar sem enn á eftir að innleiða nokkra staðla.
Rekstrarafkoma ársins 2020 var samkvæmt ríkisreikningi neikvæð um 144 milljarða kr. Tekjur námu samtals 802 milljörðum kr., þar af voru skatttekjur 655 milljarðar kr. Gjöld fyrir fjármagnsliði námu um 990 milljörðum kr., þar af voru rekstrartilfærslur 462 milljarðar kr. og laun og launatengd gjöld 279 milljarðar kr.
Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur námu 46 milljörðum kr., vaxtagjöld námu um 61 milljarði kr. og vaxtatekjur um 15 milljörðum kr. Hlutdeild í afkomu félaga var jákvæð um 90 milljarða kr.
Efnahagsreikningur ríkissjóðs hefur tekið umtalsverðum breytingum síðustu ár, m.a. vegna eignfærslu varanlega rekstrarfjármuna, og eru nú stærstu eignaliðirnir eignarhlutir í félögum upp á 1.077 milljarðar kr., samgöngumannvirki 641 milljarður kr. og fasteignir 256 milljarðar kr. Samkvæmt efnahagsreikningi voru eignir samtals 2.613 milljarðar kr., skuldir og skuldbindingar samtals um 2.330 milljarðar kr., þar af eru langtímaskuldir 1.085 milljarðar kr. Eigið fé í árslok er 283 milljarðar kr.
Rekstrarafkoma ríkisreiknings er birt samkvæmt reikningsskilastaðli fyrir opinbera aðila, IPSAS, eins og ég hef áður nefnt, en heildarafkoma í fjármálaáætlun og fjárlögum er birt samkvæmt hagskýrslustaðli, svonefndum GFS-staðli. Báðum aðferðum er ætlað að tryggja samkvæmni og alþjóðlega samanburðarhæfni.
Afkoma ríkissjóðs samkvæmt ríkisreikningi er því ekki sambærileg við afkomumarkmið fjármálaáætlunar og fjárlaga. Í ríkisreikningi er birt séryfirlit, þar sem niðurstaðan er flokkuð í samræmi við GFS-flokkun fjárlaga og reyndist neikvæð um 218 milljarða samkvæmt mati Fjársýslunnar. Afkoman samkvæmt GFS-staðlinum er 208 milljörðum lakari en upprunalegu fjárlög ársins 2020 gerðu ráð fyrir. Frávik frá uppfærðum áætlunum eins og þær voru birtar með fimmtu fjáraukalögum ársins 2020 og voru kynntar hér á þinginu á haustmánuðum 2020 var hins vegar jákvætt um 53 milljarða, þ.e. þegar borið var saman við uppfærðar áætlanir.
Heimsfaraldur kórónuveiru hafði, eins og öllum er ljóst, töluverð áhrif á afkomu ársins. Traustri fjárhagsstöðu ríkissjóðs fyrir faraldurinn var beitt til þess að draga úr efnahags- og samfélagslegu tjóni og leggja grunn að viðspyrnu efnahagslífsins. Ríkisstjórnin kynnti á árinu 2020 úrræði til að styðja beint við efnahagslega vörn, vernd og viðspyrnu heimila og fyrirtækja. Þessi úrræði fólu í sér bein útgjöld fyrir ríkissjóð í formi tilfærslna, minni skattheimtu. Við kynntum til sögunnar heimildir til frestunar skattgreiðslna milli ára og loks gekkst ríkissjóður í ábyrgðir sem geta raungerst síðar sem kostnaður fyrir ríkissjóð.
Mótuð voru sértæk efnahagsúrræði sem ætlað var að vinna gegn áhrifum faraldursins. Áhrif Covid-19 ráðstafana á afkomu ríkissjóð námu um 80 milljörðum kr. á árinu 2020. Við þetta bættist sjálfvirkt viðbragð skatt- og atvinnuleysisbótakerfisins upp á ríflega 92 milljarða kr. Með því er átt við að þrátt fyrir mun verri horfur á tekjuhliðinni í gegnum skattkerfið og mun meiri væntingar um greiðslu atvinnuleysisbóta þá var ekki gripið til ráðstafana, t.d. var tryggingagjald ekki hækkað, það var þvert á móti lækkað tímabundið, á árinu 2021 en á árinu 2020 hafði það nýlega lækkað. Með því var þessu sjálfvirka viðbragði skatt- og bótakerfanna leyft að gera sitt gagn, svo að segja. Þar fyrir utan var ráðist í sérstakt átak í fjárfestingu og bætt við 15 milljörðum kr. í sérstakt átak á fjárfestingarhliðinni
Á árinu voru samþykkt fimm fjáraukalög, þar af fern snemma árs til þess að heimila og fjármagna ýmsar aðgerðir sem ráðist var í vegna heimsfaraldursins og þau síðustu komu undir lok ársins.
Virðulegi forseti. Með hliðsjón af áhrifum heimsfaraldurs má segja að ríkisreikningur sýni þrátt fyrir allt sterka stöðu í árslok 2020 fyrir ríkissjóð. Neikvæð áhrif faraldursins á rekstrarniðurstöðu ársins 2020 eru engu að síður veruleg og mun afkoma og skuldastaða ríkissjóðs bera þess merki næstu ár. Því er mikilvægt að hafa í huga það leiðarstef viðbragða og aðgerða stjórnvalda að mæta áhrifum faraldursins af krafti án þess þó að velta kostnaði aðgerðanna á komandi kynslóðir. Það var rétt ákvörðun að beita ríkisfjármálunum með öflugum hætti þegar faraldurinn skall á og sú stefna hefur stuðlað að öflugri viðspyrnu sem við sjáum nú í dag. Nú er hins vegar mikilvægt að útgjaldavöxtur fram á litið verði hóflegur og til þess fallinn að styðja við ábyrga hagstjórn. Þannig treystum við aftur grunninn til að geta tekist á við óvænt áföll í framtíðinni, rétt eins og við höfum gert undanfarna mánuði.
Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til fjárlaganefndar og til 2. umr. að aflokinni þessari umræðu.