fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2021 sem er að finna á þskj. 176. Alla jafna samþykkir Alþingi ein fjáraukalög á ári en vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og þeirra sóttvarnaaðgerða sem gripið var til samþykkti Alþingi fyrr á árinu fjáraukalög vegna ársins 2020. Þetta er því annað frumvarp til fjáraukalaga vegna ársins sem lagt er fram á Alþingi. Fyrra fjáraukalagafrumvarp ársins var lagt fram í maí til að afla fjárheimilda fyrir nýjum og breyttum ráðstöfunum fyrir heimili og fyrirtæki til að mæta samfélagslegum og efnahagslegum afleiðingum heimsfaraldursins. Að stærstum hluta var um að ræða aðgerðir í fjórða efnahagspakka ríkisstjórnarinnar sem kynntur var í lok apríl síðastliðins, en jafnframt var aflað heimilda vegna nokkurra útgjaldamála sem rekja má til áhrifa faraldursins.
Þessu frumvarpi er venju samkvæmt einungis ætlað að bregðast við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjaldamálum. Að mestu má rekja breytingar á fjárheimildum ýmissa málefnasviða og málaflokka til faraldursins en framvinda hans og áhrif á rekstur einstakra stofnana varð ekki ljós fyrr en tiltölulega seint. Þrátt fyrir að lagðir hafi verið 5 milljarðar í gildandi fjárlögum í almennan varasjóð var ákveðið að ganga ekki á þær heimildir heldur óskað eftir nýjum heimildum fyrir öllum Covid-19 kostnaði í fyrirliggjandi frumvarpi. Með því var viðhaldið getu varasjóðsins til að mæta óvæntum útgjöldum sem kynnu að koma upp síðar á árinu, svo sem vegna uppfærslu á launa- og verðlagsbótum innan ársins, náttúruhamfara og annars afleidds kostnaðar sem kann að leiða af faraldrinum.
Tillögum í frumvarpinu má skipta í tvennt. Annars vegar eru það, eins og áður sagði, tillögur vegna Covid-19 en samtals er óskað eftir 23,6 milljörðum sem tengja má við afleiðingar og aðgerðir tengdar faraldrinum. Mest er það vegna útgjalda til heilbrigðismála en einnig vegna mótvægisaðgerða sem ætlað er að milda félagsleg og efnahagsleg áhrif faraldursins. Þá er óskað eftir auknum fjárheimildum vegna vanmats í forsendum fjárlaga sem leitt hafa til ófyrirséðra útgjalda að auki við nokkur önnur sértæk og ófyrirséð útgjaldamál sem komið hafa upp á árinu 2021. Því til viðbótar eru lagðar til breytingar á hagrænni skiptingu fjárheimilda og millifærslur á milli málaflokka en slíkar breytingar hafa ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs.
Loks eru í frumvarpinu lagðar til breytingar á 5. og 6. gr. fjárlaga fyrir árið 2021 sem varða annars vegar lántökur, endurlán og ríkisábyrgðir og hins vegar ýmsar heimildir, svo sem til kaupa og sölu fasteigna, lóða og jarða sem ég fer nánar yfir á eftir.
Við undirbúning fjáraukalagafrumvarpsins hefur verið lögð áhersla á að standa að málum í samræmi við hlutverk fjáraukalaga eins og ég hef aðeins vikið að og það er nánar skilgreint í lögum um opinber fjármál. Í því felst að lögunum er ekki ætlað að mæta útgjöldum til nýrra verkefna, aukins umfangs starfsemi eða rekstrarhalla einstakra málefnasviða og málaflokka umfram setta útgjaldaramma, enda ber samkvæmt lögunum að vísa slíkum tillögum um breytingar á fjárheimildum til umfjöllunar um fjárlög fyrir næsta fjárhagsár. Líkt og í fyrri fjáraukalögum er í þessu frumvarpi hvorki lögð til breyting á tekjuhlið fjárlaga né tilheyrandi breytingar á sjóðstreymi og afkomu ríkissjóðs. Á hinn bóginn er greint frá endurmetnum afkomuhorfum í greinargerð frumvarpsins. Þá eru í frumvarpinu fyrst og fremst lagðar til breytingar á framlögum til málaflokka þar sem aukinna fjárheimilda er þörf en ekki lækkanir á framlögum til annarra málaflokka. Í einhverjum tilvikum geta þó tiltekin útgjaldamál, til að mynda millifærsla, leitt til þess að fjárheimildir málefnasviða og málaflokka lækki.
Virðulegi forseti. Ég vík þá að meginefni frumvarpsins. Það er hér farið fram á fjárheimildir sem tilteknar eru í frumvarpinu. Farið er fram á að fjárheimildir ríkissjóðs á árinu 2021 verði auknar um 46,5 milljarða. Það svarar til 3,9% frá samþykktum fjárheimildum eins og fjárlög ársins 2021 voru samþykkt. Að meðtöldum fyrri fjáraukalögum ársins nemur aukning fjárheimilda á árinu 5,2% frá samþykktum fjárlögum 2021. Þetta er auðvitað veruleg breyting en umfang tillagnanna skýrist fyrst og fremst af útgjaldamálum tengdum heimsfaraldrinum, eins og áður segir. Þau nema 23 milljörðum en öll önnur útgjöld nema þá sem sagt líka rétt um 23 milljörðum.
Stærsti hluti tillagnanna snýr að heilbrigðismálum. Þetta eru tæpir 22 milljarðar. Þar vega þyngst ýmis framlög til Landspítalans, einkum vegna aukins rekstrarkostnaðar til að mæta afleiðingum kórónuveirunnar. Þannig nemur kostnaður við farsóttarhús 2,9 milljörðum kr. og kostnaður vegna framkvæmda við skimanir á landamærum og við bólusetningu 2,1 milljarði. Enn fremur er gert ráð fyrir að framlag til Sjúkratrygginga Íslands aukist um 5,5 milljarða vegna endurmats á útgjöldum ársins. Þá er lagt til að útgjöld vegna vinnu- og atvinnuleysismála aukist um 7,8 milljarða en þyngst vegur þar 6,1 milljarður vegna átaksins Hefjum störf, eins og áður hefur komið fram. Jafnframt er gert ráð fyrir að 1 milljarður komi sem framlag vegna desemberuppbótar atvinnuleitenda. Gert er ráð fyrir að útgjöld vegna heimildarákvæðanna nemi 4 milljörðum vegna kaupa á Hótel Sögu sem ætlunin er að nýta fyrir Háskóla Íslands, auk þess sem lögð eru til aukin framlög til endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar á Íslandi um 1,5 milljarða vegna aukins umfangs í umsóknum um endurgreiðslur.
Loks er gert ráð fyrir 8,6 milljarða hækkun á málefnasviði 33 sem er fjármagnskostnaður, ábyrgðir og lífeyrisskuldbindingar. Þetta er vegna endurmats á vaxtagjöldum. Hér er einkum um að ræða hækkun vegna aukinna verðbóta í kjölfar hækkunar verðlags en 2,4 milljarðar koma til af dráttarvöxtum vegna uppgjörs við Isavia. Í frumvarpinu eru enn fremur lagðar til millifærslur milli málefnasviða og málaflokka og breytingar á hagrænni skiptingu fjárheimilda. Um er að ræða breytingar sem hafa ekki áhrif á heildarútgjöld og þar með afkomu ríkissjóðs en geta haft áhrif bæði til hækkunar og lækkunar á fjárheimildum einstakra málefnasviða og flokka. Að öðru leyti er vísað í nánari umfjöllun um útgjaldabreytingar málefnasviða og málaflokka í greinargerð viðkomandi málefnasviða.
Virðulegi forseti. Ég vil einnig vekja athygli á því í tengslum við hlutverk og umfang fjáraukalaga að í 24. gr. laga um opinber fjármál er kveðið á um almennan varasjóð A-hluta ríkissjóðs. Skilyrði fyrir ráðstöfun úr sjóðnum eru sams konar og gilda um frumvarp til fjáraukalaga, þ.e. varasjóðnum er ætlað að bregðast við útgjöldum sem eru tímabundin, ófyrirsjáanleg og óhjákvæmileg. Almennum varasjóði er einkum ætlað að mæta frávikum í launa-, gengis- og verðlagsforsendum fjárlaga og meiri háttar ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum, svo sem vegna náttúruhamfara eða útgjöldum sem ókleift er að mæta með öðrum hætti samkvæmt fjárlögum. Almennur varasjóður skal nema a.m.k. 1% af fjárheimildum fjárlaga en fjármála- og efnahagsráðherra fer með almennan varasjóð og tekur ákvörðun um ráðstöfun úr honum.
Í fjárlögum 2021 nemur heildarfjárheimild sjóðsins um 20,3 milljörðum kr. Þar af er 5 milljarða sérstakt framlag sem var ætlað að mæta sérstökum útgjöldum vegna áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru. Þetta ræddum við nokkuð á sínum tíma. Þegar hefur verið ráðstafað ríflega 5,4 milljörðum úr almenna varasjóðnum, að mestu vegna endurmats á áhrifum kjarasamninga, aurskriðu á Seyðisfirði og breytingu á vinnutíma vaktavinnufólks. En nú er gert ráð fyrir að tæplega 4 milljarðar til viðbótar fari til ráðstöfunar úr sjóðnum á yfirstandandi ári vegna nokkurra útgjaldamála sem eru þar af leiðandi ekki hluti af þessu frumvarpi. Þar vega þyngst 4 milljarðar vegna útgjalda við breytingar á vinnutíma vaktavinnufólks og launabóta en auk þess er gert ráð fyrir 0,8 milljarða framlagi vegna eldgosa á Reykjanesi og um 200 milljóna greiðslu til varna gegn dýrasjúkdómum. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um frekari ráðstöfun úr sjóðnum að svo stöddu og er því til staðar u.þ.b. 10 milljarða svigrúm til að bregðast við óvæntum og óhjákvæmilegum útgjöldum fyrir lok þessa árs ef til þess kæmi.
Ég vík þá næst að heimildarákvæðum í frumvarpi til fjáraukalaga, virðulegur forseti. Lagt er til að við heimildarákvæði í 6. gr. bætist nokkrir nýir liðir. Fyrst má nefna heimild vegna kaupa á Hótel Sögu fyrir Háskóla Íslands. Skólinn óskaði eftir því í byrjun árs að skoðuð yrðu kaup á fasteigninni undir starfsemi menntavísindasviðs þar sem núverandi húsnæði menntavísindasviðs þykir óhentugt. Að mati háskólans er um að ræða gott tækifæri til að flytja menntavísindasvið inn á aðalsvæði skólans á tiltölulega skömmum tíma ásamt því að skapa önnur tækifæri til að styrkja starfsemina á heildstæðu svæði, frá Vatnsmýri og yfir Suðurgötuna að Hagatorgi. Með þessu er húsnæðisnýting háskólans enn fremur bætt umtalsvert, úr 15.000 m² niður í 13.000 m². Þá er lagt til að jörðin Miðfossar verði keypt til að byggja upp frekari aðstöðu fyrir tilraunir, kennslu og nýsköpun í jarðrækt við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Einnig er óskað eftir heimild til að þiggja gjöf sem gefin er með kvöðum eða skilyrðum sem hafa eða geta haft í för með sér viðvarandi útgjöld fyrir ríkissjóð án heimildar í fjárlögum. Hér er um að ræða listaverk sem voru í eigu Íslandsbanka sem verða framvegis varðveitt af Listasafn Íslands. Ljóst er að kostnaður mun falla á listasafnið við varðveislu og geymslu þessara listaverka. Af þeim sökum er sérstakrar heimildar aflað vegna gjafarinnar frá bankanum. Að lokum eru lagðar til heimildir sem varða aukin framlög til þróunarsamvinnu á vegum Alþjóðabankans og er í samhengi við áform okkar Íslendinga um að ná tilteknum tölusettum markmiðum um hlutfall af landsframleiðslu sem gangi til þróunaraðstoðar.
Virðulegi forseti. Áður en ég lýk mínu máli þá vil ég fjalla nokkuð um áætlaðar afkomuhorfur á yfirstandandi ári ásamt breytingum sem orðið hafa í lánsfjármálum. Eins og ég hef hér vikið að eru hvorki lagðar til breytingar á tekjuhlið fjárlaga né heildstæðar breytingar á útgjaldahliðinni en þrátt fyrir það hefur samhliða vinnslu frumvarpsins verið undirbúið endurmat á áætlaðri útkomu ársins 2021. Þrátt fyrir tillögur um verulega auknar fjárheimildir samkvæmt frumvarpinu eru afkomuhorfur umtalsvert betri en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. Skýrist það af því að tekjur aukast meira en útgjöldin. Gert er ráð fyrir að afkomuhalli ríkissjóðs verði um 9% af vergri landsframleiðslu, eða 9,1%, á árinu 2021 en í áætlun fjárlaga var gert ráð fyrir 10,6% halla. Áætluð afkoma árið 2021 er því 32 milljörðum kr. betri en gert var ráð fyrir í fjárlögum. Tekjur ársins eru áætlaðar 851 milljarður eða 26,3% af vergri landsframleiðslu. Það eru 63 milljarða hærri tekjur en í samþykktum fjárlögum þegar leiðrétt hefur verið fyrir breyttri framsetningu á endurgreiðslu virðisaukaskatts til opinberra aðila. Þar af hækka skatttekjur og tryggingagjöld um 51 milljarð og það er í samræmi við breyttar efnahagsforsendur má segja. Heildarútgjöld ársins 2021 á þjóðhagsgrunni eru áætluð 1.144 milljarðar eða 35,4% af vergri landsframleiðslu, sem er um 45 milljörðum hærra en áætlun fjárlaga. Þegar leiðrétt hefur verið fyrir breyttri framsetningu á endurgreiðslu virðisaukaskatts til opinberra aðila nemur hækkunin rúmlega 30 milljörðum. Skýrist það m.a. af viðbótarútgjöldum í samræmi við fjórða aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar vegna heimsfaraldursins sem var samþykktur í fjáraukalögum á fyrri hluta ársins. Þá hefur atvinnuleysi reynst umfram forsendur fjárlaga auk þess sem vaxtagjöld hafa verið hærri, einkum vegna hærri verðbóta. Á gjaldahlið hefur verið tekið tillit til útgjaldamála sem tilgreind er í þessu fjáraukalagafrumvarpi en á móti til lækkunar eru fyrirliggjandi heimildir á almennum varasjóði auk annarra liða sem gert er ráð fyrir að verði innan heimilda í árslok. Á móti þessum kostnaðarauka vegur jafnframt endurmat á úrræðum vegna faraldursins sem reyndust minna nýtt en upphaflega var gert ráð fyrir, auk þess sem útgjöld vegna fjárfestinga eru lægri á þessu ári en áætlað var vegna tafa.
Virðulegi forseti. Í fjárlögum fyrir árið 2021 var gert ráð fyrir meiri hækkun skulda ríkissjóðs og að þær myndu nema um 1.519 milljörðum í árslok. Þar var gert ráð fyrir lántökum fyrir 427 milljarða á árinu en vegna minni fjárþarfar ríkissjóðs hefur lántakan verið endurmetin og er nú gert ráð fyrir að fjármögnunarþörfin standi í um 385 milljörðum. Þar af nemur innlend lántaka 268 milljörðum og samanstendur af útgáfu ríkisskuldabréfa fyrir um 180 milljarða og síðan lán frá í ÍL-sjóði fyrir 88 milljarða. Ríkissjóður gaf út skuldabréf í janúar 2021 að fjárhæð 750 milljónir evra sem samsvaraði útgáfu um 117 milljarða kr. og var til styrkingar gjaldeyrisvaraforða. Skuldabréfið ber 0% fasta vexti og kemur til viðbótar þremur útistandandi skuldabréfaútgáfum ríkissjóðs sem allar nema 500 milljónum evra. Á þeim tíma sem þetta umrædda evrulán var tekið var gert ráð fyrir því að á það kynni að reyna vegna fjárþarfar ríkissjóðs, að nokkuð yrði dregið á þetta lán, og það hefði þá þýtt að við hefðum skipt þessum evrum yfir í krónur í stað þess að taka aukin lán með skuldabréfaútgáfum en með betri efnahagshorfum, sterkari tekjuhlið, batnandi afkomu og það hvernig ríkissjóði hefur að öðru leyti gengið hér á innlenda lánamarkaðnum að fjármagna sína fjárþörf, þá hefur þannig spilast úr þessu að það hefur ekkert verið gengið á þetta evrulán og er þess vegna öll lánsfjárhæðin enn til staðar í evrum og engin gengisáhætta þannig myndast sem nokkuð var rætt um á þeim tíma sem lánið var tekið að gæti myndast ef þessum evrum yrði breytt í krónur. En það hefur sem sagt ekki verið látið reyna á þetta, hvað sem síðar kann að verða.
Vextir hafa lækkað mikið í tíð heimsfaraldursins og af þeim sökum hækka vaxtagjöld ársins af lánum hlutfallslega minna en skuldirnar. Hins vegar verða verðbætur ársins hærri en á árinu 2020 sem leiðir til þess að vaxtagjöld með verðbótum hækka um 12% milli ára en skuldir um 16%. Heildarskuldir ríkissjóðs verða um 1.448 milljarðar í árslok 2021 gangi þessar endurskoðuðu áætlanir eftir. Skuldahlutfall ríkissjóðs samkvæmt lögum um opinber fjármál verður þá um 33% af vergri landsframleiðslu. Ég verð að segja að það er nokkru betra en maður óttaðist. Nú erum við að hefja umræðu um fjármálastefnuna og í vor ræðum við fjármálaáætlun og inni í þeirri umræðu er þá stefnan og spá um lengri tíma þróun þessara skuldahlutfalla.
Virðulegi forseti. Ég hef nú farið yfir helstu þætti þessa annars frumvarps til fjáraukalaga fyrir árið 2001. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni umræðu vísað til 2. umr. og hv. fjárlaganefndar sem fær málið til skoðunar.