152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[16:02]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina. Hér stöndum við og samþykkjum 46 milljarða kr. fjárauka. Í morgun kom út álit fjármálaráðs á fjármálastefnu stjórnvalda sem undir venjulegum kringumstæðum á að klára áður en fjárlög eru samþykkt en við erum hér að fara yfir fjárlög á tveimur til þremur vikum. Á þetta er bent í umsögn fjármálaráðs en það er líka, sem er öllu mikilvægara, gagnrýni sem er í anda þess sem við í stjórnarandstöðunni höfum bent á, að það er ekkert samræmi á milli stjórnarsáttmála og fjárhagsáætlunar ríkisstjórnarinnar sem nú birtist. Ég vil því beina spurningu að hæstv. ráðherra: Munum við sjá mjög miklar breytingar koma frá ríkisstjórninni á morgun? Það er talað um 2. umr. fjárlaga strax í næstu viku. Nefndin þarf að hafa tíma til þess að rýna þessar tillögur. Megum við búast við miklum breytingum strax á morgun eða verðum við með stór fjáraukalög hér að ári liðnu?