152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[16:03]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alvanalegt að ríkisstjórn komi með breytingartillögu til þingsins fyrir 2. umr. fjárlaga. Það hefur held ég bara aldrei gerst í minni fjármálaráðuneytistíð að ríkisstjórnin hafi ekki komið með tillögur fyrir 2. umr. Við munum gera það núna eins og venja ber til. Það er ekki nema eðlilegt að það komi upp einhver mál undir þinglegri meðferð málsins og við munum þá gera þær tillögur til fjárlaganefndar. Ég vænti þess að ræða þær tillögur í ríkisstjórninni á föstudaginn og koma þeim í framhaldinu til nefndarinnar. Það er áætlunin eins og hún stendur. En ég verð að segja að ég held að þetta fjáraukalagafrumvarp sé nú ekki beint lýsandi fyrir venjulegt ár og þær athugasemdir sem hv. þingmaður vísaði til frá fjármálaráði koma í sjálfu sér ekki mikið á óvart. Þetta er staða sem þingið hefur sjálft í raun og veru leitt fram, þ.e. kosningar á hausti gefa mjög skamman tíma fyrir fjárlög. (Forseti hringir.) Það er í raun útilokað að sjá fyrir sér hvernig við hefðum getað klárað fjármálastefnu (Forseti hringir.) áður en fjárlagaumræðan hæfist.