fjáraukalög 2021.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör. Ég velti því fyrir mér hvort þær breytingar sem við munum þá sjá undir lok vikunnar muni benda til þess að fjármálastefna sem er búið að leggja fram sé strax sprungin. Það virðist vera að þær tölur sem við sjáum núna í fjárlögunum, sem bera með sér að vera embættismannafjárlög, séu í raun tölur sem voru samþykktar síðasta vor þrátt fyrir að ítrekað hafi verið talað um það í kosningabaráttunni að fjármálaáætlun yrði endurskoðuð í ljósi stjórnarsáttmálans. Getur hæstv. ráðherra upplýst okkur um hvort við munum sjá mjög miklar breytingar þar á og megum við þá búast við að sú fjármálastefna sem er búið að leggja fram breytist líka mjög mikið í meðförum nefndarinnar?