fjáraukalög 2021.
Virðulegur forseti. Á bls. 49 og 50 í þessari grænu bók fjáraukalaga segir orðrétt, með leyfi forseta:
„Hins vegar er um að ræða aukin framlög vegna atvinnuleysisbóta og desemberuppbótar til atvinnuleitenda.“
Frábært mál. Desemberuppbót atvinnuleitenda er 92.229 kr. í desember. Hún skerðist auðvitað eins og bætur almannatrygginga en fer samt aldrei niður fyrir 23.000 kr. Hún skerðist sem sagt aldrei niður í núll eins og gerist hjá þeim sem eru í almannatryggingakerfinu. Svo er líka mjög gott og frábært að þar er 5.532 kr. aukadesemberuppbót með hverju barni. Þess vegna spyr ég hæstv. fjármálaráðherra: Nú ætlar hann ekki að setja 50.000 kr. auka sem hefðu átt að vera hérna inni, skatta- og skerðingarlausar, fyrir öryrkjana. En er hann tilbúinn að gera eitthvað svipað fyrir þá sem eru innan almannatryggingakerfisins og gert er fyrir atvinnuleysisbótaþega í frumvarpinu?