fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Fyrst varðandi þessi bótakerfi sem hv. þingmaður er að nefna hér, það er í sjálfu sér ekki fjármálaráðherrans að gera tillögur til breytinga á þeim kerfum eða um einstakar viðbótargreiðslur. Það væru þá tillögur sem kæmu frá viðkomandi ráðherra málaflokksins sem við myndum taka til skoðunar. Ég hef tekið eftir því að flokksmenn hv. þingmanns hafa gert mikið með orð mín frá því í gær þar sem ég sagði ekki annað en að mér þætti óeðlilegt að það kæmu fleiri en ein viðbótargreiðsla svona undir lok árs sem fólk væri að bíða eftir og vonast til þess að sjá, kannski og kannski ekki. Það væri þá miklu nær fyrir okkur að horfast í augu við það að ef við værum að koma með slíkar uppbætur eða viðbótargreiðslur á hverju ári þá væri kerfið ekki að fjármagna það sem því væri ætlað. Þær ættu þá að verða hluti af bótakerfinu sem slíkar í stað þess að koma sem tvöföld viðbótargreiðsla í lok árs. Þetta var það sem ég sagði. (Forseti hringir.) Ég hef aldrei haldið því fram að menn væru eitthvað ofsettir með viðbótargreiðslur. Ég hef hins vegar sagt að kerfið þyrfti að taka til endurskoðunar (Forseti hringir.) og það á bæði við um þessi tvö kerfi sem varða lífeyrinn en ekkert síður atvinnuleysisbætur.
(Forseti (BÁ): Forseti minni á ræðutímann sem er styttur þar sem margir óska eftir að veita andsvör.)