152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[16:10]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra svarið og gæti ekki verið meira sammála honum. Ég vildi óska þess að kerfið væri tekið alveg til endurskoðunar. En ríkisstjórnin var búin að vera í fjögur ár og hefði getað verið búin að þessu fyrir lifandis löngu. Þið eruð búin að vera í fjögur ár og þið talið alltaf um að breyta kerfinu. Þá langar mig líka að vita: Hvers vegna í ósköpunum eru þið með svona flókið kerfi og hvers vegna eruð þið alltaf að mismuna á milli kerfa? Af hverju gefið þið 92.000 kr. til atvinnuleitenda en 47.000 kr. til öryrkja og 16.000 kr. ef þeir eru með heimilisuppbót? Hvers vegna í ósköpunum eruð þið að gera kerfið svona flókið? Er það vísvitandi og viljandi til þess að gera það að verkum að fólk fái ekki þessar bætur? Það er stór hópur þarna úti sem fær ekki krónu í desemberuppbót, ekki 1 kr., er það eðlilegt?