fjáraukalög 2021.
Forseti. Ég vil byrja á að hafna orðum hæstv. ráðherra um að þetta sé staða sem þingið sjálft hefur í raun og veru leitt fram, eins og hann sagði í andsvörum áðan. Það er ákvörðun ríkisstjórnar að kjósa að hausti. Svo vil ég fara yfir í ákvörðun ríkisstjórnar um Hefjum störf sem var ákvörðun um verkefni sem var tekin eftir að fjárlög voru nýsamþykkt á síðasta ári og var síðan gerð skil í fjárauka í vor upp á 4,3 milljarða, 1,9 milljarða fyrir ráðningarstyrki. Nú í þessu fjáraukalagafrumvarpi er verið að segja að það hafi verið vanáætlað um 6,1 milljarð. Hvar er virðingin fyrir því að fjárveitingavaldið er hérna á þingi?
Forseti. Þetta er ótrúlegt.