fjáraukalög 2021.
Virðulegur forseti. Hvað sem hv. þingmanni kann að finnast um það hvort það er ríkið eða þingið sem ákveður hvenær kosningar eru þá getur engin ríkisstjórn haldið kosningar án þess að tekin sé ákvörðun um það hér á þingi. En punkturinn var þessi: Ef það er kosið að hausti og það tekur tíma að koma saman ríkisstjórn þá er erfitt að sjá að þessi taktur sem er teiknaður inn í lögin um opinber fjármál gangi alveg upp. Þetta er ein af ábendingum fjármálaráðs. Þannig að í stað þess að beina þessari gagnrýni að stjórninni eða þinginu núna ættum við kannski frekar að spyrja okkur hvort við ættum, í ljósi þessarar athugasemdar, að hugleiða hvenær næst verður kosið í reglubundnum kosningum. En ég tek undir með hv. þingmanni að það er mjög slæmt að þessi tiltekni fjárlagaliður sem hann vísar til hafi verið svona harkalega vanmetinn. Bjarta hliðin á því máli er sú að úrræðið hefur verið nýtt langt umfram væntingar og þannig (Forseti hringir.) hafa orðið til störf langt umfram það sem við gátum átt vonir til. Virðingin fyrir lögunum birtist í því að hingað er komin beiðni um að fá heimild.