152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[16:17]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir greinargóða yfirferð. Ég tel að hann stýri hér býsna góðu búi og minni á það sem ég sagði fyrir nokkrum dögum, að við eigum að vera þakklát fyrir hversu efnuð við raunverulega erum, hversu vel okkur hefur gengið efnahagslega á undanförnum árum og hvað það er mikið til. Það er nóg til skiptanna. Það er umdeilt hvernig forgangsröðunin á að vera. Í tveimur af hverjum þremur tölvupóstum sem ég fæ er ákall frá fólki sem á mjög erfitt og er með ákall til okkar hér á þingi um að koma með einhvers konar jólabónus, sambærilegan og öryrkjar fengu í fyrra. Mér sýnist að af þeim 20 milljörðum sem ganga af þessum varasjóði núna ætti klárlega að vera til liðlega 1 milljarður til að mæta því og ég skora á hæstv. ráðherra að gera það mögulegt.