fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fara að taka svona viðkvæmt mál og gera það tæknilegt, en það má alveg velta því fyrir sér hvort það væri í samræmi við tilgang laganna að koma með slík ný útgjaldatilefni inn í fjáraukalagaumræðu. Það er alveg álitamál. Hitt er síðan að í gegnum tíðina þá gekk þetta þannig fyrir sig að tekin var sjálfstæð ný ákvörðun um að koma með svokallaða desemberuppbót, sem sumir eru farnir að kalla jólabónus, og þetta gerðist ár eftir ár þar til þingið tók ákvörðun um að gera ráð fyrir þessu í fjárheimildum ársins. Þess vegna var greidd út desemberuppbót í upphafi desembermánaðar. Á árinu 2020 tók ríkisstjórnin hins vegar ákvörðun um það, með samþykki þingsins, að koma því til viðbótar með aðra sérstaka greiðslu vegna Covid-ástandsins og þeirra erfiðleika sem voru í landinu. Umræðan núna og allir þessir tölvupóstar sem hv. þingmaður er að vísa til, og berast mér líka, fjalla um (Forseti hringir.) það að við ættum að endurtaka þá viðbótargreiðslu. En við erum sem sagt búin að festa inni í kerfinu okkar desemberuppbót sem einu sinni hét jólabónus.