fjáraukalög 2021.
Virðulegur forseti. Ég get bara tekið undir að það er ástæða til að taka kerfin til endurskoðunar. Ég hvet mjög til þess og vil beita mér fyrir því í ríkisstjórninni að sú vinna hefjist sem fyrst. Ég get sömuleiðis tekið undir hvert orð, að það myndi marga muna mjög mikið um viðbótargreiðslu. Við erum í sjálfu sér ekki að ræða það tiltekna mál hér í þessu fjáraukalagafrumvarpi en það skulum við bara vona að félagsmálaráðherra, sem ber ábyrgð á málaflokknum, sé að hlusta og sé til svara um það hvað standi til að gera í málaflokknum í heild og varðandi það ákall sem hv. þingmaður fjallaði um.