fjáraukalög 2021.
Forseti. Ég tek heils hugar undir þessa tillögu hv. þm. Kristrúnar Frostadóttur. Þetta er mjög á þeim nótum sem við höfum verið að tala um hérna og ég held að í reynd sé mikill einhugur um þetta í þinginu. Við göngum í næstu viku til hátíðar ljóss og friðar og kærleika í tilnefni af fæðingu þess sem jólin miðast við og eru helguð. Við skulum samvisku okkar allra vegna, að ég held, sammælast um að gera þetta. Ég skora á hæstv. fjármálaráðherra að mæla fyrir þessu og taka altént vel erindi hæstv. félagsmálaráðherra ef hann fæst til að mæla fyrir þessu. Þetta snýst um samvisku okkar og hjartalag og ég er þeirrar trúar að það sé almennt gott í þessum sal. Ég veit að hæstv. fjármálaráðherra er góðmenni og hann mun taka þessari áskorun, þessari breytingartillögu, með opnum og jákvæðum huga.