152. löggjafarþing — 11. fundur, 15. des. 2021.
fjáraukalög 2021.
174. mál
Forseti. Ég hef litlu við það að bæta sem ég sagði áðan, ég ætla ekki að eyða tíma í að orðlengja það mikið. Ég segi bara: Sammælumst um að gera vel og ganga til jóla með góða samvisku, með jákvæð og góð skilaboð til þeirra sem mest þurfa á því að halda. Ég held að restin af þjóðinni muni gleðjast yfir þessu og líða betur í hjartanu ef við sýnum þessa rausn sem þó er engin ofrausn.