fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp til þess að halda áfram þeirri umræðu sem ég tók upp hér fyrr í dag um þetta mál og mikilvægi þess. En mig langaði til að nefna það sérstaklega, því að nú eigum við töluverðar upplýsingar á Íslandi um fátækt annars vegar og þann hóp samfélagsins sem býr við sárafátækt hins vegar. Þarna er þessi hópur einna stærstur því að það er þannig í íslensku samfélagi að það er heilsufar og það er staða á húsnæðismarkaði sem mestu spáir fyrir um það að fólk lendi í þeirri stöðu að glíma við sárafátækt. Ég er sammála því, eins og fram hefur komið í umræðum, að þetta er skref sem er eðlilegt að stíga, einfaldlega vegna þess að það er rétt að stíga það. En ég hefði líka áhuga á því að heyra sjónarmið hv. þingmanns um það hverju þetta skilar til baka til samfélagsins, þeir fjármunir sem fara í neyslu, í matvöru og í aðra neyslu þessa fólks — hvort ekki sé líka einhver ávinningur í því til baka.