fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég vil bara árétta að ég lít á það sem viðbótarrök fyrir því að stíga þetta skref að þetta eru krónur sem skila sér að miklu leyti til baka í kassann. En það er auðvitað ekki höfuðástæða þess að fara í þessa tilteknu aðgerð. Ég er þingmanninum um leið hjartanlega sammála um að það megi líta til sjónarmiða og röksemda, sem komu fram í frumvarpi hæstv. félags- og barnamálaráðherra á sínum tíma, um mikilvægi þess að grípa inn í. Við vitum það auðvitað að hér falla undir fjölskyldur og um leið börn. Ef maður horfir á málið bara út frá kostnaði og gjöldum þá væri hægt að nálgast það í fyrsta lagi út frá því hverju það skilar til baka, en svo má einmitt líka nálgast það út frá því hver samfélagslegur kostnaður er af aðgerðaleysinu, að standa ekki með fólki sem sannarlega þarf á því halda. Hver eru áhrifin af því til skemmri og lengri tíma gagnvart þeim fjölskyldum sem þarna falla því miður undir?