152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[16:39]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Mig langar til að snúa aðeins upp á hana, ef ég fæ leyfi til þess, og benda til að mynda á þann kostnað sem við höfum séð vinda upp á sig núna í hagkerfinu vegna t.d. aðgerðaleysis stjórnvalda í húsnæðismálum, sem bitnar hvað þyngst á þessum hópi. Verðbólguþrýstingurinn sem rýrir nú tekjur þessa hóps er afleiðing af aðgerðaleysi á húsnæðismarkaði, sem bitnar fyrst og fremst á þessum hópi og þar sjáum við hærri verðbólgutölur, aðallega út af þessum lið, þannig að við sjáum áhrif aðgerðaleysis víða í samfélaginu.

Þetta er eitt af því sem ég hef verið að reyna að vekja athygli á núna á mínu fyrsta kjörtímabili, mikilvægi þess að við áttum okkur á því að ríkið og ríkisstjórnin er ekki áhorfandi í efnahagslífi okkar. Þessir markaðir sem við störfum í falla ekki af himnum ofan. Þeir eru skapaðir af fólkinu sem situr hér inni og við ríkisstjórnarborðið. Þess vegna er mjög mikilvægt þegar svona aðstæður koma upp, eins og dýrtíð, það kemur aukin verðbólga inn í kerfið, að við bregðumst við því og að hér séu kraftar sem eru tilbúnir að taka ákvarðanir vegna mikilvægis þess að bregðast við svona ástandi. Það er einmitt vegna þess að aðgerðaleysi í stórum málaflokkum getur leitt af sér mikinn kostnað síðar. Ég held að við sjáum bara mjög margt í stefnu núverandi stjórnvalda sem skapar ákveðinn kostnað í kerfinu og bitnar sérstaklega á þessum hópi. Þetta eru afleiðingar þess að bíða of lengi til að mynda með endurskoðun á þessum málaflokki og framfærslu. Og það að hunsa í sífellu beiðnir um aukastuðning með þeirri afsökun að það sé eitthvað annað í farvatninu, er auðvitað ekki boðlegt nú um stundir Þess vegna held ég að það sé ofboðslega mikilvægt að þingið taki af skarið núna og knýi fram samþykkt þessarar tillögu.