152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[16:42]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (um fundarstjórn):

Í þessari umræðu um fjáraukalagafrumvarp hefur mikið verið fjallað um það ákall sem okkur þingmönnum hefur borist frá öryrkjum varðandi sérstaka desemberuppbót. Í andsvörum við hv. þm. Jakob Frímann Magnússon sagði hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að við værum í sjálfu sér ekki að ræða þetta tiltekna mál í þessu frumvarpi og vísaði á hæstv. félagsmálaráðherra. Mér þykir þetta reyndar ansi óhefðbundin verkaskipting þegar kemur að því að ákvarða um úthlutanir fjárheimilda sem eru á málasviði fjármála- og efnahagsráðherra, en ráðherrann hélt áfram og sagðist bara vona að félagsmálaráðherra væri að hlusta og kannski standa til svara varðandi það ákall sem hér væri gert að umtalsefni. Ég vil taka undir þessi orð hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og geri þá kröfu að hæstv. félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra mæti hér í þingsal í þessa umræðu og geri grein fyrir því hvað standi til að gera fyrir öryrkja fyrir jólin.