fjáraukalög 2021.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir ræðuna. Hann fór vel yfir það hvernig allt virðist vera vanáætlað hjá þessari ríkisstjórn, t.d. er 60% vanáætlun vegna verkefnisins Hefjum störf. Þá hljótum við líka að spyrja: Hvers vegna er þetta svona vanáætlað? Er það vísvitandi og viljandi gert? Ef svo er þá spyr maður líka: Hvers vegna gera þeir þetta vísvitandi og viljandi? Síðan getum við líka spurt hinna spurninganna: Vita þeir ekki hvað þeir eru að gera? Eða: Er þeim bara alveg sama? Ætla þeir bara að gera þetta á einhvern hátt? Þá eru líka spurningar sem ættu ekki að vera flókið mál, t.d. um NPA-samninga. Það ætti ekki að vera flókið mál að vita nákvæmlega hvað þarf nokkurn veginn. Það væri þá betra að ofáætla en vanáætla, að einu sinni væri hægt að setja upp eitthvað þannig að það væri í plús fyrir þá sem þurfa á því að halda en ekki alltaf í mínus. Það er skelfilegt og auðvitað þurfum við að taka á þessu af því að vitum að það eru 144 einstaklingar undir 67 ára inni á elliheimilum. Hversu stór hluti af þessum einstaklingum þyrfti á NPA-samningi að halda og eiga í sjálfu sér rétt á honum?