152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[17:00]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir andsvarið. Ég get ekki annað en verið honum innilega sammála. Ef við tökum þetta furðulega mál sem varðar þennan 1,1 milljarð sem var settur þarna inn, hann var eiginlega að detta út. Það merkilegasta við þetta er að þegar farið var í breytingar á almannatryggingakerfinu fyrir aldrað fólk voru teknir frá peningar í kerfið fyrir öryrkjana. Maður gerir sér eiginlega ekki grein fyrir því en þeir nota það eiginlega sem svipu á öryrkjana að þeir hafi neitað að fara í starfsgetumat sem átti að þvinga upp á þá. Fyrir vikið hefur ríkisstjórnin dregið lappirnar í að gera eitthvað í málinu vegna þess að á meðan þeir draga lappirnar þá þurfa þeir ekki að setja milljarða í þetta kerfi. Þar af leiðandi sjá þeir fram á að spara sér einhverja tugi milljarða sem þeir gera nú þegar og geta sennilega haldið því áfram næstu fjögur árin. Ég sé ekki fram á að það verði breytingar þar á.

Það er líka alveg skelfilegt til þess að hugsa að við skulum vera með einstaklinga í NPA sem þurfa nauðsynlega á aðstoð að halda en þurfa að fara í hart til að reyna að ná því fram, eftir að hafa verið fluttir hreppaflutningum, lögþvingaðir inn á elliheimili, að komast út úr því fangelsi. Ég spyr: Hvers lags kerfi erum við að búa til ef við getum bara sagt við alvarlega veikan einstakling sem þarf aðstoð og á rétt á NPA: Þú færð þetta ekki. Við setjum þig inn á stofnun hjá eldra fólki þar sem þú átt ekkert heima og við ætlum að hafa þig þar til að spara? Ég held að það sé varla hægt að beita meira ofbeldi.