152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[17:02]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Persónulega finnst mér þetta mjög sorglegt mál því að ég vann með þessum einstaklingi áður, yndislegur maður og alveg hryllilega sorglegt hvað kom fyrir. Þannig að — já, það er hörmung.

Ég skal segja hv. þingmanni mína skoðun á því hvernig þetta kerfi er og sérstaklega hvernig kerfið er varðandi örorkulífeyrinn þar sem nú er búið að ná kerfisbreytingum hjá eldri eldra fólki. Eldra fólk fær hækkun á frítekjumarki, ekki örorkuþegar. Af hverju? Af því að kerfisbreytingarnar eru ekki komnar, af því að það er ekki búið að samþykkja kerfisbreytingarnar. Það er einfaldlega verið að svelta fram breytingar. Málið er ekki flóknara en það. Það er verið að svelta fram breytingar. Það er haldið á gulrót: Þið fáið 4 milljarða ef þið farið í kerfisbreytingar. Og þegar svarið var að það gengi ekki, það virkaði ekki svona, þá voru settir alla vega 2,9 milljarðar í að lækka krónu á móti krónu í krónu á móti tveir þriðju af krónu. Frábært. En það er þá tvöfalt loforð af því að það var þegar búið að lofa þessu í kerfisbreytingar yfirleitt. Þá er 1,1 milljarður eftir. Þá er sagt: Farið í kerfisbreytingar og þá fáið þið þennan 1,1 milljarð.

Þetta er ákveðin kúgun. Fólk sem er langt undir lágmarkslaunum samþykkir þá í rauninni hvað sem er til að hætta a.m.k. að svelta eða svelta alla vega minna. Þessu er lofað en ekkert gerist. Þá er það gert að jólagjöf. Það er bara einföld — ég veit ekki hvaða orð ég á að nota yfir það. Mér finnst það alla vega ekki kurteisi.