152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[17:05]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um fundarstjórn):

Forseti. Mér finnst það líka áhugaverð bón að fá hæstv. félagsmálaráðherra hingað í ræðustól. Samkvæmt reynslu minni í fjárlaganefnd af því að spyrja öll ráðuneytin er það þannig að þau fá skammtaðar fjárheimildir frá fjármálaráðuneytinu. Það að fjármálaráðherra komi og segi: Við skulum bara vona að félagsmálaráðherra sem ber ábyrgð á málaflokknum sé að hlusta og verði kannski til svara um hvað standi til að gera í málaflokknum í heild. Það ákall sem hv. þingmaður var að fjalla um í andsvörum hér áðan, virðist benda til þess að félagsmálaráðherra hafi stjórn á fjárheimildum þess málaflokks, sem ég hef alla vega ekki orðið var við í nefndarstörfum mínum. Ég velti því fyrir mér hvort þetta sé rétt miðað við stjórnskipan landsins. Við erum ekki með fjölskipað stjórnvald. Hver ráðherra á að vera með sjálfstjórn yfir sínu ráðuneyti (Forseti hringir.) og þá væntanlega tillögu að fjárheimildum fyrir sitt ráðuneyti. Það gerist einhvern veginn ekki þannig. Ég hlakka til að sjá félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra koma hingað og útskýra það fyrir okkur.