fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Mig langar aðeins til að blanda mér í þessa umræðu um fjarveru félagsmálaráðherra vegna þess að hún er tengd við þau orð sem ég lét falla áðan í svari við andsvari. Hér er fjáraukalagafrumvarpið, það er á mína ábyrgð og við erum hingað mætt til að ræða það. Þar er ekki tillaga frá félagsmálaráðherra um þessa viðbótargreiðslu í desember ofan á viðbótargreiðsluna sem þegar er útgreidd. En ég skal láta það koma hér fram í tilefni af umræðunni, í tilnefni af breytingartillögu sem hér hefur verið kynnt og í tilefni af ákalli um að félagsmálaráðherrann verði hér að það stendur að sjálfsögðu ekkert annað til við þinglega meðferð þessa máls og í þeirri lýðræðislegu umræðu sem hér fer fram en að ræða þá kröfu sem fram er komin og taka til hennar afstöðu. Það gerist kannski ekki akkúrat hér og verður ekki botnað í umræðu um fjáraukalagafrumvarpið. En í mínum huga, þannig að það sé alveg skýrt, er þessari umræðu ekki lokið.