fjáraukalög 2021.
Virðulegur forseti. Ég hjó eftir þessu áðan í sambandi við félagsmálaráðherra sem hæstv. fjármálaráðherra talaði um. Eftir á setur mann eiginlega hljóðan. Ég hugsaði með mér: Þarf félagsmálaráðherra að biðja um þetta eða getur hæstv. fjármálaráðherra bara tekið ákvörðun um það sjálfur að fara með þetta inn? Ég held að það sé einmitt málið. Það þarf ekkert að koma frá félagsmálaráðherra. Fjármálaráðherra getur bara alveg sagt: Mér líst rosalega vel á þessa hugmynd, þessa 50.000 kr. eingreiðslu, að hún verði bara sett aftur á dagskrá. Ég myndi óska þess að það yrði það sem skeði næst.