152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[17:10]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum að ræða fjáraukalög og höfum verið að ræða þau í dag. Við höfum líka rætt vel og vendilega að þessar 50.000 kr. eingreiðslur, skatta- og skerðingarlaust, skuli ekki vera inni í fjáraukalögunum núna. Hvers vegna voru þær inni á síðasta ári? Það var ekkert flókið, vegna Covid-19. Það var aðalástæðan fyrir því að þetta var inni í fjáraukalögum síðast. En hvað hefur breyst á þessu eina ári? Hefur Covid-19 horfið? Nei. Er staða þessa hóps verri en hún var fyrir ári síðan? Já, vegna verðbólgu. Verðbólgan er og var mun hærri heldur en þau 3,6% sem þessi hópur fékk um síðustu áramót. Þar af leiðandi hefði verið afskaplega eðlilegt og bara mikið góðverk ef ríkisstjórnin og fjármálaráðherra hefði núna sett inn þessar 50.000 kr., skatta- og skerðingarlausar, vegna þess að það er það eina sem skilar sér beint til þessara einstaklinga.

Hæstv. fjármálaráðherra sagði hér áðan að desemberuppbót eða jólabónus, eða hvað við viljum kalla það, væri inni í almannatryggingakerfinu. Og það er rétt, það er inni í kerfinu en því miður er kerfið sett þannig upp að desemberuppbótin er ákveðið hlutfall af tekjutryggingu. Það myndi gefa þar 47.881 kr. og 30% af heimilisuppbót sem gefur 16.184 kr. til öryrkja. En vandamálið liggur í því að allt skerðist. Það þýðir á mannamáli að einn einstaklingur getur algjörlega fengið fullar bætur, fengið 47.000 kr. vegna tekjutryggingar og 16.000 kr. vegna heimilisuppbótarinnar, en annar sem býr við hliðina á honum fær ekki neitt. Hvernig er þá hægt að segja að desemberuppbót sé inni í almannatryggingum ef hún skilar sér ekki til stórs hóps fólks? Það segir okkur bara að það er eitthvað vitlaust gefið.

Við eigum líka að spyrja okkur að því þegar vinnandi fólk fær jólabónus, alveg eins og við fáum jólabónus, af hverju það er ekkert sem skerðir hann, þó að við búum með maka okkar eða búum með öðrum einstaklingi þá skerðir það ekki, en ef þú ert öryrki þá skerðir það alveg um leið og skerðir grimmilega, ekki bara jólabónusinn heldur heimilisuppbótina. Ég hef kallað þessa heimilisuppbót hálfgerðan hjónaskatt sem er upp á 188.000 kr. á mánuði. Tveir vinnandi einstaklingar sem ætla sér að stofna heimili, það er hagkvæmt fyrir þá á allan hátt, en tveir öryrkjar sem ætla að stofna heimili, það er óhagkvæmt á allan hátt fyrir þá. Ef þeir búa á sitthvorum staðnum þá fá þeir fulla heimilisuppbót, 54.000 kr. hvor, og ef það væru ekki aðrar tekjur myndu þeir líka fá 16.184 kr. í jólabónus og jafnvel 47.881 kr. í jólabónus vegna tekjutryggingar en um leið og þeir fara að búa saman þá þarf að skerða. Þetta er ómannúðlegt og þetta er líka heimskulegt. Það segir sig sjálft að það er betra fyrir þjóðfélagið, fyrir okkur öll og sérstaklega fyrir þessa tvo einstaklinga að þeir búi saman og hafi eina íbúð heldur en að þeir þurfi tvær sérstakar íbúðir. Auðvitað eiga þeir að hafa hag af því.

Okkur ber eiginlega skylda til að sjá til þess að við séum ekki alltaf að mismuna fólki bara vegna þess að það er veikt eða vegna þess að það er aldrað. Hvers vegna í ósköpunum erum við með þetta kerfi? Ég er alveg orðinn 100% sannfærður um að þetta er vísvitandi og viljandi gert vegna þess að, eins og ég hef margoft sagt, þeir hæla sér af þessu 1%. Hugsið ykkur, þeir segja 1%, það ætla þeir að leggja fram aukalega á fjárlögum núna en ekki þessar 50.000 kr. sem við vildum fá skatta- og skerðingarlaust. Á meðan þeir setja þetta 1% inn, sem þeir segja að séu heilar 800 milljónir, vitum við að það skilar sér ekki. Og áðan vorum við t.d. að tala um krónu á móti krónu skerðingar sem fóru í 65 aura á móti krónu. Sá greiði, að lækka úr krónu í 65 aura á móti krónu, varð þess valdandi að stór hópur fór verr út heldur en ella. Hvers vegna? Jú, vegna keðjuverkandi skerðinga í kerfinu, vegna þess að þetta var talið sem auknar tekjur hjá þessum einstaklingum og minnkaði þá vegna skerðinganna. Þá var farið að skerða húsaleigubætur, sérstakar húsaleigubætur, alls konar aðrar bætur. Þetta segir okkur að þetta er arfavitlaust kerfi, svo ótrúlegt að maður getur ekki skilið það. Við megum ekki gleyma því að þegar hæstv. fjármálaráðherra talar um óvænta glaðninga út um allt, að ekki sé hægt að vera að deila út svona óvæntum glaðningum, að á sama tíma verðum við að horfa á alla þá kjaragliðnun sem hefur orðið hjá þessum hópi. Hún er ekki undir 50% sem eru alveg gífurlegir fjármunir. Eins og einn hv. þingmaður benti á í grein myndum við aldrei samþykkja að svona væri komið fram við okkur sem launafólk, með svona fáránlegu ofbeldi.

Það er annað í þessum fjáraukalögum sem er svolítið skrýtið og ég fór eiginlega að furða mig á. Þar segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Auk þess er gert ráð fyrir að framlag til Sjúkratrygginga Íslands aukist m.a. um 2,1 milljarð kr. vegna endurmats á kostnaði vegna t.d. tannlækninga og sjúkraþjálfunar og um 2,6 milljarða kr. vegna endurmats á kostnaði við kaup á lyfjum.“

Ég spyr mig: Eru samningar sem á eftir að gera við sjúkraþjálfara inni í þessu? Það er nefnilega svolítið merkilegt að maður fer til heimilislæknis og þar er núll, maður þarf ekki að borga og ríkisstjórnin hefur hælt sér af því að hafa stórminnkað kostnað í heilbrigðiskerfinu. En ef þú ferð til sjúkraþjálfara þarftu að borga aukalega. Þar hafa greiðslurnar stórhækkað sem gerir það að verkum að margir eldri borgarar og öryrkjar hafa ekki orðið efni á að fara til sjúkraþjálfara. Og hvers vegna skyldi það vera? Jú, vegna þess að ríkisstjórnin neitar að semja við sjúkraþjálfara, alveg eins og þeir gerðu við talmeinafræðinga. Þeir eru að þvinga sjúkraþjálfara, eins og þeir gera og reyna að gera við öryrkja, að þvinga ákveðna aðila til uppgjafar. Það er aldrei gott að beita þannig fjárhagslegu ofbeldi, myndi ég segja, að reyna að fá fólk til að samþykkja eitthvað sem það vill ekki samþykkja gegn því að það fái kannski umbun, fái kannski þessa 4 milljarða sem áttu að vera á hverju ári. En við vitum að þó að þeir tali sig græna, ríkisstjórnin, um að þeir ætli að endurskoða þetta kerfi og ætli að setja þessa 4 milljarða inn í það þá skilar það sér ekki. Þeir vita það vel að þó að þeir ætli að setja 4 milljarða inn í kerfið þá fá þeir megnið af því beint til baka. Það rennur í gegnum vasa þeirra sem eiga að fá þetta og beint í ríkissjóð aftur vegna þess hvernig kerfið er byggt upp.

Það er þess vegna sem við verðum að endurskoða kerfið. Og það er bara ein leið til að það skili sér beint til þessa hóps: Hættum að skatta fátækt. Setjum þetta í gegnum skattkerfið. Það sem er merkilegt við það er að það er auðvitað langbesta leiðin til að þetta sé þjóðfélagslega hagkvæmt, það er langbesta leiðin til að skila því beint til fólksins að það fái þennan pening. Við þurfum ekki að fara nema aftur til 1988 þegar ellilífeyrinn var skatta- og skerðingarlaus og fólkið átti 30% eftir upp í lífeyrissjóð eða aðrar tekjur. Ef það var hægt þá er það örugglega hægt núna. En þeir sem fá lægstu tekjurnar, þeir sem eiga að lifa á 266.000 kr. fyrir skatt, borga 35.000–36.000 kr. í skatt. Það á enginn að borga skatt af því sem hann getur ekki einu sinni lifað af. Og að koma svo hingað hvað eftir annað og fullyrða í þessum ræðustól að ekki sé hægt að setja inn þessar 50.000 kr. — það eru smáaurar í öllu samhengi og miðað við þá 4 milljarða sem eru búnir að vera á hverju einasta ári síðan samið var við eldri borgara. Þessar 50.000 kr. skatta- og skerðingarlaust eru smáaurar til að setja hérna inn. 100.000 kall væri frábært en bara sem fyrsta skref.

Síðan verðum við bara að taka okkur saman í andlitinu og taka þetta kerfi og henda því, núllstilla það hreinlega. Það er eina leiðin til þess að það skili því sem það á að gera. Það á að vera kerfi sem heldur utan um einstaklinginn, það á að vera kerfi þar sem einstaklingnum er leiðbeint og það á að hafa það svo einfalt að hann þurfi ekki heilt tölvukerfi til að skilja hvað hann á að fá útborgað og hvernig kerfið virkar, hvað þá að við skulum enn þá vera með kerfi sem er þannig að eldri borgarar og öryrkjar þurfi að reikna út verðbólgu fram í tímann. Hugsið ykkur kröfuna. Það merkilegasta í þessu öllu saman er að Seðlabankinn, ASÍ og allir bankarnir og aðrir; enginn hefur getað gert þetta en samt er gerð krafa um það á eldra fólk og veikt fólk. Við erum t.d. með 0,8% hækkun núna vegna þess að meira að segja ríkisstjórnin gat ekki reiknað verðbólguna á þessu ári rétt út. En hvað gera þeir þá? Jú, þeir borga þetta eftir á. Þeir fá þennan pening eftir á. Það hlýtur að vera óskaplega aum ríkisstjórn sem getur hagað sér svona. Það er ein leið sem ég held að sé kristaltær ef við viljum breyta þessu kerfi — þessi ríkisstjórn sem er búin að sitja í fjögur ár hefur ekki gert það og ég hef enga trú á að hún geri það næstu fjögur árin, við verðum kannski að vona að hún hangi ekki í fjögur ár — en það er fólkið þarna úti sem getur breytt þessu með því að sjá til þess að núverandi ríkisstjórn verði ekki langlíf. Í næstu kosningum verður almenningur að sjá til þess, þeir sem vilja breyta kerfinu, að kjósa allt annað en þá sem eru núna við völd.