152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[17:25]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég upplifi nú í fyrsta skipti fjárlagagerð Íslands og á sama tíma upplifi ég hvernig farið er með það sem kallað er fjárauki. Þetta er stækkuð mynd af því sem ég hef verið að fást við í tvo áratugi eða svo, með fjárhagsáætlun sveitarfélaga og síðan einhverjum viðaukum sem þarf að samþykkja samkvæmt lögum þegar fjárheimildir duga ekki til að borga þau útgjöld sem ráðast þarf í.

Mig langar fyrst að vera svolítið jákvæður. Mér finnst hægt að gleðjast yfir því að tekjur ríkissjóðs séu meiri en ráð var fyrir gert. Það er líka í samræmi við það sem við erum að gera í fjárlagagerðinni, að reiknað er með afkomubata þar og sá afkomubati virðist hafa hafist á þessu ári, þannig að tekjur bæði ríkis og sveitarfélaga hafa verið að aukast. Við hljótum að fagna því að svo sé. En á sama tíma sjáum við líka að gjöld hafa aukist minna en tekjur. Þannig að það er aukinn afkomubati hjá ríkissjóði og ég held að við hljótum gleðjast yfir því að svo sé, að við sjáum þetta fara í betra horf en spár höfðu gert ráð fyrir.

Auðvitað stinga í stúf svona stórar tölur sem þessi faraldur hefur krafist af okkur, að við þurfum að eyða tæpum 20 milljörðum í viðbótarframlög vegna veikinda af Covid og miklu álagi á spítala og heilbrigðisstofnanir. En þetta er auðvitað eitthvað sem enginn gat séð fyrir og ekki var hægt að reikna út fyrir fram. Alveg sama hvaða hagfræðingar hefðu reynt að reikna það út þá hefði það ekki tekist. Við erum að kljást við veiru sem enginn veit hvert mun leiða okkur. Vonandi tekst okkur að sigrast á henni á einhverjum tímapunkti. En þetta er auðvitað bara sá veruleiki sem við lifum í núna frá degi til dags.

Að átakið sem ráðist var í, Hefjum störf, hafi búið til 7.400 ráðningarsamninga hlýtur að teljast jákvætt, vegna þess að ef það hefði ekki verið gert hefðu mörg fyrirtæki sagt þessu fólki upp. Þarna myndaðist þá möguleiki á því að fólk gæti haldið áfram sínu starfi eða átaksverkefni sem farið var í gagnvart nemendum. Þeir gátu fengið vinnu sem annars hefði ekki verið fyrir hendi. Ég þekki það bara úr mínu sveitarfélagi, þar var talsvert af ungu fólki ráðið til starfa sem hafði gert ráð fyrir að starfa fyrir flugfélagið eða uppi í Flugstöð sem var bara lokuð. En vegna þessara möguleika var hægt að ráða inn í gegnum þau úrræði sem boðið var upp á. Auðvitað er skrýtið að sjá þær tölur sem þarna eru, að þetta sé umfram, upp á 6 milljarða. Þetta eru svo stórar tölur sem maður nær ekki alveg utan um. En átakið sem slíkt skilaði sér og virkaði úti í samfélaginu. Það er engum blöðum um það að fletta. En ráðningarsamningar sem gerðir voru verða ekki til staðar á nýju ári. Ég verð að segja að ég hef áhyggjur af því að þessi úrræði verði ekki til staðar á nýju ári, en samkvæmt fjárlagafrumvarpinu verður það allt tekið út. Öll þessi stuðningsúrræði eru tekin út í einhverju bjartsýniskasti. Ég verð að lýsa yfir vonbrigðum með að það sé gert.

Í þeirri vinnu sem er nú við fjárlagagerðina erum við að ræða við marga hópa, m.a. listafólk sem margt hefur ekki haft laun í næstum tvö ár, tónlistarfólk sem hefur annars mestmegnis lifað á því að halda tónleika í aðdraganda jóla. Við höfum líka verið að ræða við sviðslistamenn sem hafa jafnvel sett sjálfa sig að veði við að opna lítil leikhús og sett þá sjálfa sig á hausinn í framhaldinu. Við heyrum í veitingamönnum sem ekki geta haft opið og geta þá auðvitað ekki ráðið til sín starfsfólk eða tónlistarfólk eða aðra. Ég er því áhyggjufullur yfir því sem mun gerast í framhaldinu.

Ég vil líka nefna þann hóp sem var á atvinnuleysisskrá áður en Covid skall á okkur, þegar WOW féll og í framhaldi af því varð 10% atvinnuleysi á Suðurnesjum. Það eru margir sem hafa misst bótarétt sinn og fá þar af leiðandi ekki desemberuppbót. Það eina sem þeir geta leitað í er fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, þannig að þessi hópur er ekki í góðum málum.

Ég ætla að lýsa yfir stuðningi við þá tillögu sem fram er komin um greiðslur til öryrkja. Mér svíður í hjarta að lesa alla þá pósta sem til okkar hafa verið sendir að undanförnu, frá fjölskyldum sem ekki geta haldið gleðileg jól eins og við hin. Það er ekkert hægt að sitja hjá aðgerðalaus. Við sem höfum verið á launaskrá hjá hinu opinbera þurfum engu að kvíða, við höfum fengið launin okkar frá mánuði til mánaðar og þurfum engu að kvíða. En það eru aðrir hérna úti í samfélaginu sem eru ekki í þeirri stöðu og við þurfum að vera tilbúin að breiða út faðminn og taka á móti slíku fólki þegar það biður um hjálp. Við getum ekki látið það um okkur spyrjast að fólk sé í þessari stöðu núna rétt fyrir jólin og í raun og veru aldrei. Þrátt fyrir að við myndum samþykkja að greiða út þennan svokallaða jólabónus á þessum tíma þá dugar það hvergi til. Það er svo margt sem við þurfum að skoða í þessu velferðarkerfi okkar sem ekki er í lagi, til þess að við búum ekki alltaf til þetta misgengi að ákveðnir hópar sitji eftir.

Virðulegur forseti. Mig langar að lokum að minnast á lánveitingar sem getið er um í þessum fjárauka, að verið sé að taka lán til að styrkja gjaldeyrisvarasjóðinn. Það er svolítið kúnstugt að horfa á þetta. Til hvers erum við að styrkja gjaldeyrisvarasjóð? Er það af því að við erum að kaupa í útlöndum og þurfum að eiga gjaldeyrisvarasjóð? Eða er þetta vegna þess að við erum með svo lélegan gjaldmiðil að hann þarf hækju til að styðjast við? Þurfum við sýknt og heilagt að kaupa og selja gjaldeyri til að halda ónýtum gjaldmiðli gangandi? Þetta finnst mér ankannalegt og skil ekki hvers vegna í ósköpunum ekki er horft til þess að búa til stöðugleika eins og ríkir í löndunum í kringum okkur. Að því sögðu þá þakka ég fyrir mig.