152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[17:36]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Hv. þingmaður talaði hérna um átakið Hefjum störf og árangur þess, sem er alveg ótvíræður. En spurningin sem ég hef varpað fram hérna, einmitt af því að átakið kom ekki í gegnum hefðbundið fjárlagaferli, er: Hefðum við getað náð sama árangri með minni pening, hvað þá varðandi stöðuna á Suðurnesjum eins og hún er búin að vera? Það er rétt rúmlega 9% atvinnuleysi þar enn þá.

Mér finnst það rosalega undarlegt hvernig ákvarðanir eru stundum teknar hérna. Við erum að glíma við stórkostlega undarlega stöðu listamanna t.d., eins og ég fjallaði aðeins um á fjárlaganefndarfundi í morgun, þar sem framlögin lækka þrátt fyrir að það sé áframhaldandi vandi vegna þess að það eru enn þá takmarkanir og ófyrirsjáanleikinn er mjög flókinn. Ég velti því bara fyrir mér, í stöðunni eins og við sjáum hana birtast okkur í fjárlagafrumvarpinu, hvar stjórnvöld stíga niður; ekki hjá listafólki, og þau koma ekki til þingsins með tillögur. Þau segja: Hérna erum við með frábæra hugmynd, Hefjum störf, til að leysa atvinnuleysisvandann á Íslandi, hún kostar 4,3 milljarða. Nei, nei, fyrirgefið, það kostar 10 komma eitthvað milljarða, það er ekki alveg víst hversu mikið. Þetta er mjög ankannalegt. Niðurstaðan er vissulega minna atvinnuleysi. Hvað gerist þegar þetta hættir? Við höfum ekki hugmynd um það. Og hvernig er staðan á Suðurnesjum, sem var sérstaklega slæm, svæði sem varð fyrir miklum áhrifum af faraldrinum og er enn þá í rúmlega 9% atvinnuleysi? Hvernig sjáum við ríkisstjórnina í raun bregðast við vandanum einmitt þar sem hann er, að mati hv. þingmanns?