fjáraukalög 2021.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, þegar átakið var upphaflega sett í gang þá var talað um að þessi fjárhæð ætti að duga til að búa til 7.000 störf. Þannig var það kynnt. Ég þekki ekki alveg hvað gerðist en ég þykist vita að laun þeirra sem ráðnir voru inn á þessu átaki hafi haft eitthvað með það að gera, ég skal ekki um það segja. Það var auðvitað varað við því á sínum tíma að þessir fjármunir myndu ekki duga. Það var um það talað í upphafi að þetta myndi aldrei duga fyrir 7.000 störf. Ég held að við höfum verið að tala um í kringum 3.000 störf upphaflega, þannig að það var vitað að ef menn myndu ná þessum kvóta, 7.000 störfum, þá myndi þessi upphæð ekki duga. Ég held að allir hafi gert sér grein fyrir því, þrátt fyrir að þetta væri skrifað svona niður. En ég er auðvitað bara áhyggjufullur yfir því að þessi úrræði séu að falla niður á sama tíma og við erum í mínum heimabæ með 10% atvinnuleysi. Það er bara skelfilegt að hugsa til þessarar stöðu. Miðað við að það séu 10.000 manns atvinnulausir á Íslandi, þá er helmingurinn af því, 4.000 og eitthvað, langtímaatvinnulausir. Við verðum að búa til úrræði fyrir þessa hópa í framhaldinu. Það dugar ekki bara að segja: Covid er búið og þetta er bara farið, af því að það eru hópar sem hafa verið skildir eftir. Þeir hafa ekki fengið þau úrræði sem duga fyrir þá til þess að þeir komist af stað aftur.