152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[17:40]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég tók mig einmitt til þegar tillagan um Hefjum störf kom hér fyrst og reiknaði. Bara rassvasareikningur hjá mér sagði að miðað við atvinnuleysisbætur myndu fjárheimildirnar, þessir 4,5–5 milljarðar sem þetta átti að kosta, klárast í kringum kosningar. Ég spurði þá einfaldlega í fjáraukaumræðunni: Hvað þá? Eigum við í alvörunni að vera með einhvers konar atvinnuátak sem klárast á kosninganótt? Hvers konar meðhöndlun á almannafé er það eiginlega? Það kemur úr dúrnum að upphæðirnar sem voru settar í það voru síðan hærri, sem gerir það að verkum að þessar fjárheimildir duga skemur, og svo er bara haldið áfram að fjármagna þetta umfram fjárheimildina sem þingið samþykkti. Mitt rassvasabókhald var greinilega miklu nákvæmara en útreikningar ráðuneytisins og það hefur sannað sig núna. Fjárheimildirnar kláruðust í kringum kosningar. Síðan eru liðnir þrír mánuðir sem þarf að klára aukalega og umfram það voru upphæðirnar hækkaðar. Þannig að ég skil það mjög vel að fjárheimildirnar sem þarf fyrir þetta átak hafi meira en tvöfaldast. Þess vegna finnst mér svo mikilvægt að spyrja: Getum við notað rúmlega 10 milljarða til að búa til fleiri en 7.000 störf á einhvern annan hátt, ódýrari hátt, sem jafnvel er ábatasamara til framtíðar? Við fengum aldrei að fjalla um það hér í þessum þingsal. Við fengum aldrei umsagnir um það frá snillingum úti í samfélaginu sem vita hvernig á að skapa störf, skapa verðmæti. Þeir fengu enga aðkomu að þessu. Þetta var bara ríkisstjórnin að draga þetta út úr rassgatinu á sér án þess að spyrja kóng eða prest og það er ekki boðlegt.