152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[17:49]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Við flutning breytingartillögu við frumvarp til fjáraukalaga áðan láðist mér að gera grein fyrir meðflutningsmönnum, sem eru hv. þingmenn Eyjólfur Ármannsson, Björn Leví Gunnarsson og Guðbrandur Einarsson, en öll sitjum við í hv. fjárlaganefnd. Eins og sést er samstaða meðal þessara fjögurra flokka hvað varðar þetta mál.