152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[17:49]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Í fyrra var samþykkt aukafjárheimild úr ríkissjóði þar sem gert var ráð fyrir endurskipulagningu almannatrygginga. Þá fór 1,1 milljarður úr ríkissjóði í svokallaðan jólabónus öryrkja, eingreiðslu. Það var farið í þessa greiðslu vegna Covid. Þetta var í fyrra. Til að koma þessari eingreiðslu áfram þurfti að samþykkja lög um breytingu á lögum um almannatryggingar og síðan var fjárheimildin veitt í fjáraukalögum. Í athugasemd við 2. gr. frumvarpsins um breytingar á lögum um almannatryggingar, segir, með leyfi forseta:

„Í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem nú ríkja vegna heimsfaraldurs kórónuveiru er lagt til að eingreiðsla þessi verði skattfrjáls og teljist þannig ekki til tekna lífeyrisþega og leiði þar með ekki til skerðingar annarra greiðslna.“

Í ár er það bara lögbundin desemberuppbót sem boðið er upp á. Hver er staðan á Covid í dag? Ekkert hefur breyst vegna Covid. Staðan er nákvæmlega sú sama eða mjög svipuð. Við erum enn þá í heimsfaraldri og núna koma þessar sérstöku greiðslur ekki, eru ekki veittar öryrkjum. Það er miður. Hafa ber í huga að staða hinna verst settu í samfélaginu og staða öryrkja í dag er verri en hún var í fyrra. Covid er enn við lýði og í ofanálag er mun hærri verðbólga sem öryrkjar þurfa að glíma við. Það að ekki skuli vera farið núna í þessa sérstöku eingreiðslu án skerðinga segir mikið um þessa ríkisstjórn, svo ekki sé meira sagt. Þetta sýnir að grunnkerfin sem fjármálaráðherra talar svo mikið um eru ekki að virka. Þau gera það ekki í dag og þau gerðu það ekki í fyrra. Það að tala um það að grunnkerfin eigi núna að taka á þessum málum stenst bara engan veginn. Málflutningur hæstv. fjármálaráðherra er þversögn við það sem var gert í fyrra og auðvitað á að endurtaka þessa eingreiðslu núna í desembermánuði eins og í fyrra. Þetta sýnir afstöðu ríkisstjórnarinnar til öryrkja og til hinna fátækustu í samfélaginu.

Hæstv. fjármálaráðherra spurði áðan: Hvers vegna eru kerfin svona flókin? Svarið við því er mjög einfalt. Þau eru flókin vegna skerðingarkerfanna. Það eru skerðingar við lýði í öllum þessum bótakerfum; bótum öryrkja, aldraðra, í barnabótum o.s.frv. Þannig kerfi er ekki á Norðurlöndunum, þar er ekki skerðingarkerfi og þar er það einfalt mál að tekjujöfnunin er tekin í gegnum skattkerfið en ekki skerðingarkerfi. Þetta skerðingarkerfi bitnar mest á millitekjuhópum og það er raunverulega verið að verja þá sem hafa hæstar tekjur í samfélaginu. Þetta er viðhorf þessarar ríkisstjórnar til fátækasta hluta samfélagsins, til öryrkja sem búa við það meira að segja að ef þeir vilja fara út á vinnumarkaðinn þá þola þeir skerðingar. Það er gríðarlega mikilvægt að breytingartillaga stjórnarandstöðunnar nái fram að ganga líkt og í fyrra, að stjórnvöld komi með sömu greiðslu og í fyrra, skatta- og skerðingarlaust til öryrkja.