152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[17:54]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Aðeins um breytingartillöguna fyrst, af því að það er innstæða fyrir henni alveg nákvæmlega eins og síðast. Síðast var 1,1 milljarður afgangs af því að ekki tókst að koma því út í nákvæma fjárheimild vegna kerfisbreytinga fyrir öryrkja. Þannig að 1,5 milljarðar, sem öryrkjar áttu með réttu að fá, voru til staðar. Þá þurfti Alþingi einfaldlega að skrifa: Þetta fer þá bara í eingreiðslu. Gjörið svo vel, þetta er það sem þið áttuð að fá. Til hamingju. Við vorum nú samt búin að lofa ykkur einhverju af þessu en tókst ekki að gera þetta fyrr en í desember.

Í ár erum við í þeirri stöðu að launaþróun var vanmetin. Það sem það þýðir er að í fyrra var tekin ákvörðun um að hækka bætur almannatrygginga um launaþróun eða verðbólgu. Verðbólgan var þá hærri, þ.e. áætlun um verðbólgu var hærri. Allt í lagi. Raunin er hins vegar sú að það var vanáætlað, það munar 0,8% og það er það sem ríkisstjórnin hefur ákveðið núna, það er bara pólitísk ákvörðun, að segja: Heyrðu, já, við ætlum að viðurkenna vanmat á okkar áætlun fyrir árið 2021 og uppfæra fyrir 2022. En þau gera það út frá verðlagsþróun, ekki út frá launaþróun. Ef þetta væri gert út frá launaþróun þá vantar 2% upp á, meira að segja ofan á þessa 1% hækkun aukalega sem ríkisstjórnin hefur ákveðið, það vantar 2% þar upp á. Það er líka hluti af þeim launum sem öryrkjar hafa misst af árið 2021 þannig að þau eiga þetta inni. Aftur. Við erum einfaldlega segja: Gjörið svo vel. Hérna er peningurinn sem er lögbundið að þið eigið að fá, verðlagsþróun eða launaþróun, hvort sem er hærri. Þetta er rosalega einföld tillaga og að sjálfsögðu er upphæðin kannski aðeins lægri, en það er ekkert nema sjálfsagt að hafa hana bara sömu upphæð og síðast. Ekkert nema sjálfsagt að gera það. Annað er bara flókið. Höfum það í huga þegar við afgreiðum þessa tillögu stjórnarandstöðunnar, að öryrkjar eiga þetta inni.

Mig langaði til þess að minnast örstutt aftur á verkefnið Hefjum störf. Ég talaði um þetta hérna síðast þegar fjáraukalög voru samþykkt í vor og kvartaði undan þessari upphæð, 7.000 störf fyrir 4,3 milljarða. Það gengur ekki upp. Ef maður tekur upphæðina fyrir atvinnuleysisbætur og margfaldar 7.000 með fjölda mánaða, þá dugar það og sá fjöldi mánaða að kosningum. Þá eru eftir þrír mánuðir rúmir af þessum þremur til fjórum mánuðum eða eitthvað slíkt sem úrræðið hefði þá dugað fyrir, eins og sumarstörfum nemenda og að koma verkefninu í gang. Það var bara hálffjármagnað. Augljóslega vantaði helmingi meira fjármagn. Ég spurði bókstaflega um þetta í fjáraukalagafrumvarpsumræðunni í vor. Ástæðan fyrir því að þetta er 6,1 milljarður aukalega en ekki 4,3 er að ákveðið var að hækka upphæðina. Í sumum tilfellum er hærri upphæð en atvinnuleysisbætur greidd með þessu verkefni, Hefjum störf. Þannig að auðvitað kostar það meira. Ég bjóst við að þegar ég var að samþykkja þessa fjárheimild, bara miðað við útreikninginn, að ríkisstjórnin myndi hætta þessari aðgerð þegar fjárheimildir væru búnar. Þannig býst maður við að kerfið virki hérna þar sem Alþingi samþykkir fjárheimild fyrir 4,3 milljarða, gjörðu svo vel, og þá klári stjórnvöld 4,3 milljarða og segi: Nú er verkefnið búið. Við ætluðum að búa til 7.000 störf fyrir 4,3 milljarða. Búið. Frábært. En nei, þeir héldu því áfram án nokkurs umboðs Alþingis, sem er gríðarlega alvarlegt óháð því hversu gott úrræðið er, óháð því. Við vitum ekki nema að það sé til eitthvert betra úrræði sem hefði farið betur með 10 milljarða. En samt, það er alvarlegt mál að ríkisstjórnin hunsi fjárveitingavald Alþingis á þennan hátt.