152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[18:02]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Hér fyrr í dag tók ég undir ákall hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um að félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra mæti í þessa umræðu í þingsal og geri grein fyrir því hvað standi til að gera fyrir öryrkja um jólin. Nú er hann mættur en það hefur láðst að tilkynna honum að hann eigi ekki bara að hlusta, eins og fulltrúar Vinstri grænna hafa sagt að þau vilji gera í þessu máli, heldur eigi hann líka að segja hvað hann ætli að gera. Það skiptir nefnilega ekki máli bara að hlusta og segjast stjórna, það skiptir máli að sýna hvernig þú ætlar að stjórna. Ákall öryrkja til okkar á þingi er ekki að við tökum bara við tölvupóstunum frá þeim um að þau vanti peninga til að halda gleðileg jól. Nei, ákallið snýst um að við samþykkjum eingreiðslu til þeirra. Það er mjög skýrt. Þess vegna vona ég að hæstv. ráðherra, sem er mættur hér í salinn, hlusti ekki bara heldur tali og tali jafnvel þannig að hann styðji öryrkja.