fjáraukalög 2021.
félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (um fundarstjórn):
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að segja að þessi umræða sem hér fer fram er að mínu viti mjög mikilvæg. Við erum öll sammála um að við þurfum að bæta kerfi almannatrygginga. Við erum sammála um að við þurfum að bæta sérstaklega kjör þeirra sem ekki hafa tækifæri til að vinna fyrir sér og auka tækifæri þeirra sem geta unnið fyrir sér í sveigjanlegum störfum og hlutastörfum. Þetta eru allt saman verkefni sem eru fram undan. Ég hef líka fengið ótal beiðnir frá fólki og við erum að hlusta á það sem fólk er að segja. Málið er komið inn í þingið og ég vonast til að við getum rætt það hérna áfram. Ég tel mikilvægt að við hlustum á það ákall sem uppi hefur verið en ég ætla ekki að úttala mig um með hvaða hætti við getum mögulega gert það. Ég vil síðan minna á það að lokum að orlofsuppbót og desemberuppbót hefur verið greidd nú þegar. En ég geri mér fyllilega grein fyrir því að ákallið er um eingreiðslu sem er skattfrjáls.