fjáraukalög 2021.
Frú forseti. Ég gleðst yfir orðum hæstv. félagsmálaráðherra sem virðist ætla að taka vel í breytingartillögu stjórnarandstöðunnar við fjáraukalögin, sem einmitt tryggir það að þessi eingreiðsla geti átt sér stað núna um þessi jól. Ég treysti á stuðning hans við þá breytingartillögu sem allir stjórnarandstöðuflokkar stóðu saman að í dag af því að það skiptir máli að við sýnum það í verki en ekki bara í orði að við stöndum raunverulega með þessum hópi sem þarf svo sannarlega á því að halda að fá þennan stuðning skerðingarlaust. Það er það sem þetta snýst um, að við séum ekki að skerða þær fjárhæðir sem við leggjum til.