152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[18:06]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Það hefur verið forvitnilegt að fylgjast með umræðunni hér í dag og síðustu daga. Ég verð að segja sem nýr þingmaður að það er alveg ótrúlega erfitt að lesa alla þessa pósta sem við fáum. Ég hef svolítið verið að hugleiða þetta. Það er heilmikið átak fyrir hvern og einn að setjast niður fyrir framan tölvu, setjast niður og berskjalda sig, og senda póst á ókunnugan mann þótt hann eigi sæti á Alþingi. Það gerir það enginn nema hann sé raunverulega í neyð eða nauð. Þannig að ég ætla rétt að vona að það beri árangur. Mér hefur fundist menn reyndar tala svolítið í austur og vestur. Mér heyrist á sumum stjórnarliðum að þeir séu opnir fyrir því að gera þetta og myndu styðja breytingartillögu stjórnarandstöðunnar á meðan aðrir tala í hina áttina. Þannig að ég myndi gjarnan vilja fá svolítið skýrari svör, bara almennt hjá stjórnarliðinu, um hvar þeir standi nákvæmlega í þessu máli og hvort þessir póstar allir hreyfi ekki við þeim.