fjáraukalög 2021.
Forseti. Ég kem hérna upp í fundarstjórn þótt ég hefði talið betra að eiga þetta samtal undir umræðum um fjárauka. En ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma alla vega upp í fundarstjórn og lýsa því yfir að hann muni beita sér fyrir því að þessi hópur, þ.e. öryrkjar, fái þessa eingreiðslu aftur. Ég vil taka undir með þeim sem hafa komið hérna upp, um að það er átakanlegt að fá alla þessa tölvupósta. Innboxið mitt er fullt af tölvupóstum frá fólki sem á um sárt að binda og er að biðja um að fá að eiga gleðileg jól. Mér finnst í sjálfu sér umhugsunarvert að fólk þurfi í raun og veru að senda tölvupóst á þingmenn til að betla út peninga til að geta náð endum saman. Mér finnst það í raun bara absúrd pæling að við þurfum að standa í þessu, að það skuli ekki vera sjálfsagt að endurtaka eingreiðslu sem var greidd út með þeim rökum að það voru enn þá höft í samfélaginu út af Covid. Þau rök eiga enn þá við í dag. Það eru enn þá höft út af Covid. (Forseti hringir.) Auðvitað á þessi eingreiðsla að koma og auðvitað þurfum við ekki einu sinni að ræða þetta hérna. (Forseti hringir.) Stjórnarandstaðan er komin með tillögu og ég legg til að stjórnvöld og ráðherra beiti sér fyrir því að sú tillaga verði samþykkt.