152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[18:09]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um fundarstjórn):

Forseti. Mig langar til að spyrja forseta og Alþingi hver ákveði fjárheimildir fyrir félagsmálaráðuneytið. Samkvæmt minni reynslu í fjárlaganefnd þá segja allir fagráðherrarnir svokallaðir að það sé bara ráðuneytið sem reikni þeim stærðirnar: Gjörðu svo vel. Hérna er upphæð sem þú færð fyrir þinn málaflokk, gjörðu svo vel. Þetta er ekki minn málaflokkur, þetta er þinn málaflokkur en þetta eru samt fjárheimildirnar sem þú færð.

Nú er alveg komið skýrt í ljós að þetta var rangt reiknað. Það er nákvæmlega eins og þessi hópur hefði staðið í kjarabaráttu og fengið launahækkanir samkvæmt samningum en svo er bara ekki staðið við þær. Þau fá einfaldlega lægri prósentu og að sjálfsögðu eiga þau heimtingu á að fá það sem munar þar á milli. Það er kjarni þessarar tillögu, að þær launahækkanir sem þessi hópur fékk á síðasta ári eru vanáætlaðar. Svo er það að sjálfsögðu almenn skynsemi þar að auki.