152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[18:10]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Nú erum við að tala undir liðnum fundarstjórn forseta og það er gott að hæstv. félagsmálaráðherra sé á meðal okkar. Við höfum rætt eingreiðslu, en um leið liggur náttúrlega fyrir að það ríkir alger óvissa um það hvernig málefnum öryrkja verður hagað næstu árin. Stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar og þetta fjárlagafrumvarp sem liggur fyrir eru bæði mjög óljós hvað þetta varðar. Fjármálaráðherra hefur svolítið bent á félagsmálaráðherra, eða hann gerði það a.m.k. í dag þegar við ræddum þetta mál við hann. Og vegna þess að ég býst við því að félagsmálaráðherra komi hérna upp á eftir þá fæ ég kannski að spyrja hvort það sé í takt við hans áherslur sem ráðherra í þessum málaflokki að nú eigi að hækka frítekjumark atvinnutekna hjá eldri borgurum en skilja öryrkja eftir, og hvort lækkandi framlög, t.d. í málefnum fatlaðra næstu árin, sé líka til marks um það að Vinstrihreyfingin – grænt framboð sé að setja meira svip sinn á þennan málaflokk (Forseti hringir.) og hvort þessi áframhaldandi kjaragliðnun, sem (Forseti hringir.) boðuð er með þeim forsendum sem birtast okkur í fjárlögum, sé í raun stefna hans þegar kemur (Forseti hringir.) að almannatryggingakerfinu á Íslandi.

(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)