fjáraukalög 2021.
Frú forseti. Það var áhugavert að hlusta á hæstv. félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra hérna áðan. Hann segist hafa hlustað og hann geri sér grein fyrir kröfu öryrkja, enda er hún mjög skýr, en hann ætlar ekki að úttala sig hér í þingsal um það hvernig hann ætli að bregðast við henni. Málið væri nefnilega komið til þings og hann vonaði að hér gætum við rætt það áfram. Mér finnst alveg skiljanlegt að við fáum svona snúin svör frá ráðherranum þegar hann heldur að þetta sé bara einhver aumur stjórnarandstöðuþingmaður að biðja hann um að mæta í þingsal og standa augliti til auglitis við öryrkja landsins og segja að hann telji þá ekki eiga að fá 50.000 kr. eingreiðslu fyrir jólin. En þetta er ekki mín hugmynd. Ráðherrann var náttúrlega ekkert að fylgjast með umræðunni hérna í dag þegar fjármálaráðherra, yfirfrakkinn á félagsmálaráðherranum þegar kemur að fjárheimildum, sagði: Það væri kannski ágætt að ráðherrann myndi vera til svara um það hvað standi til að gera varðandi þetta ákall. (Forseti hringir.) Það felur ekki í sér að koma hingað upp í fundarstjórn (Forseti hringir.) og vera með einhvern skæting. Það felur í sér að halda ræðu, (Forseti hringir.) taka við andsvörum og standa reikningsskil aumingjaskapar síns.
(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. þingmenn aftur á að virða ræðutíma.)